Hafna að setja kirkju að veði fyrir gjöldum 18. janúar 2011 05:30 Á Bræðraborgarstíg 2 á að rísa kirkja og á Bakkastíg 8 safnaðarheimili og íbúð prests rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar, Fréttablaðið/Vilhelm
Andrey Tsyganov, sendiherra Rússlands á Íslandi, gekk á fund Jóns Gnarr borgarstjóra í desember og sýndi honum uppdrætti að kirkjubyggingu og safnaðarheimili sem rússneska rétttrúnaðarkirkjan hyggst reisa á Bræðraborgarstíg og Bakkastíg. Stefnt er að því að undirrita samningana um kirkjulóðina upp úr miðjum febrúar á hátíðisdegi innan rússneska safnaðarins. Af því tilefni er væntanlegur háttsettur fulltrúi rússnesku kirkjunnar í Moskvu, að því er sendiherra Rússlands hefur tilkynnt borgaryfirvöldum. Í vegi fyrir því að lóðamálið sé leitt til lykta stendur þó meðal annars að Rússar hafa enn ekki sent inn teikningar að kirkjunni. Páll Hjaltason, formaður skipulagsráðs Reykjavíkur, sat áðurnefndan fund sem borgarstjóri átti með Tsyganov sendiherra og fylgdarliði 16. desember síðastliðinn. Á fundinum voru Rússarnir með möppu með uppdráttum af kirkjunni fyrirhuguðu og sýndu fulltrúum borgarinnar. Þeir vildu ekki skilja möppuna eftir en boðuðu að þeir myndu senda teikningar á tölvutæku formi síðar. Eftir því sem næst verður komist hafa teikningarnar þó enn ekki skilað sér. „Við fyrstu sýn sýndist mér að þetta væri alveg á þeim forsendum sem voru gefnar fyrir þessari lóð. Eigi að síður þurfum við fyrr eða síðar að fá teikningar af þessu húsi og fara yfir þær,“ segir Páll við Fréttablaðið. Hann kveðst eiga von á að uppdrættirnir skili sér í tæka tíð svo hægt verði að ganga frá lóðamálinu í febrúar. En skortur á teikningum er ekki það eina sem tefur málið. Ágúst Jónsson, skrifstofustjóri framkvæmda- og eignasviðs Reykjavíkur, segir að ekki sé komið endanlegt form á lóðasamninginn. „Í venjulegum hefðbundnum lóðaleigusamningum segir að byggingar á lóðum séu að veði fyrir fasteignagjöldum og öðrum opinberum gjöldum. En söfnuður Moskvu-patríarkans er með reglur þar sem segir að bannað sé að veðsetja kirkjulegar eignir,“ nefnir Ágúst sem dæmi um mál sem strandað hafi aðeins á og þurfi að leysa. Þá sé til skoðunar að láta lítinn skika úr borgarlandinu, sem ekki tilheyri lóðunum tveimur, verða hluta kirkjulóðarinnar. „Við vinnum bara að þessu í kristilegum kærleika.“ gar@frettabladid.is
Mest lesið Halla Hrund sótti ekki um nýja forstjórastöðu Innlent Fastur á leigumarkaði með verðlaust hús í Grindavík Innlent „Ekki sniðugt að vera með fólk sofandi þarna inni“ Innlent Flytur út frá foreldrum sínum þökk sé hundaheppni Innlent Verkfræðingar segja vald SA „óeðlilega mikið“ Innlent Sagðir hafa lagt á ráðin um skemmdarverkin á Nord Stream í ölæði Erlent Fundu ferðamennina um hálf eitt í nótt Innlent Gena Rowlands er látin Erlent Skilur gagnrýni á háa orlofsgreiðslu Innlent Leggur til að hjólhýsabyggðin verði við Rauðavatn eða í Gufunesi Innlent Fleiri fréttir Skilur gagnrýni á háa orlofsgreiðslu „Ekki sniðugt að vera með fólk sofandi þarna inni“ Flytur út frá foreldrum sínum þökk sé hundaheppni Beðið eftir gosi, orlofsgreiðslur og ósáttir verkfræðingar Fjórir berjast um embætti umboðsmanns Alþingis Fundu erfðabreytileika sem stórauka áhættu á Parkinsons „Týpísk pólitík að tefja málið“ Afhentu bæjarstjóra undirskriftalista vegna Coda Terminal Leggur til að hjólhýsabyggðin verði við Rauðavatn eða í Gufunesi Verkfræðingar segja vald SA „óeðlilega mikið“ Fastur á leigumarkaði með verðlaust hús í Grindavík Halla Hrund sótti ekki um nýja forstjórastöðu Fundu ferðamennina um hálf eitt í nótt Ekið heim eftir „smá uppsteyt“ í miðborginni Allt með kyrrum kjörum þrátt fyrir reyk og ljóstýru Gaukarnir gista og fá snyrtingu Leita að göngumanni í Kerlingarfjöllum Óttast um velferð íbúa og höfðar til skynsemi þeirra Tryggja þurfi að vindorkan haldist í höndum þjóðarinnar Bótagreiðslur til Íslendinga almennt hærri Á annað hundrað kvenna bíða eftir minni brjóstum Setti hraðamet í heiðurssundi fyrir syni Eddu Bjarkar Ósammála um hvort árekstur hefði orðið Gripin með óhrein peningabúnt í Leifsstöð Stíga annað stórt skref að virkjun við Búrfell Óvenjulegur grafreitur reistur á Seltjarnarnesi Eyddu sprengju úr seinni heimsstyrjöldinni í Hlíðarfjalli Halldór Bragason lést í eldsvoðanum Enginn vindmyllugarður án bættra vega Orsök veikindanna enn á huldu Sjá meira