Lífið

Laddi fær ekki að tala fyrir strumpana

Laddi fær ekkert að strumpast með Strumpunum í nýrri strumpamynd. Hann fær hins vegar að tala fyrir Kjartan galdrakarl í talsetningu Sigurðar Sigurjónssonar. Jóhanna Guðrún verður ein af strumpunum.
Laddi fær ekkert að strumpast með Strumpunum í nýrri strumpamynd. Hann fær hins vegar að tala fyrir Kjartan galdrakarl í talsetningu Sigurðar Sigurjónssonar. Jóhanna Guðrún verður ein af strumpunum.
„Ég fór í prufur eins og allir aðrir og er trúlega kominn með hlutverk. Ég verð Kjartan galdrakarl en fæ ekki að tala fyrir strump. Ég hafði vonast eftir að fá að tala fyrir Æðstastrump en ég verð bara venjulegur maður," segir Þórhallur Sigurðsson, Laddi.

 

Stórtíðindi verða í sögu íslensk barnaefnis þegar Strumpamyndin verður frumsýnd í ágúst því Laddi, sem talaði fyrir alla strumpana í frægum sjónvarpsþáttum, verður ekki einn af strumpunum. „Nei, þessi mynd verður aðeins öðruvísi, strumparnir í myndinni eru bara með venjulegar raddir. En galdrakarlinn er náttúrlega mjög skemmtileg týpa og það verður mjög skemmtilegt að tala fyrir hann," segir Laddi sem viðurkennir að honum þyki þetta eilítið leiðinlegt. „Þetta eru nú bláu börnin manns."

 

Sigurður Sigurjónsson leikstýrir talsetningu myndarinnar. Hann játar það fúslega að það sé ákveðin áhætta fólgin í því að láta Ladda ekki tala fyrir strumpana í myndinni í ljósi sögunnar. „En hann talar fyrir Kjartan og mér skilst að hann sé bara nokkuð sáttur með það hlutverk. Ég hefði samt ekki treyst mér í þetta verkefni án Ladda."

 

Sigurður kveðst þó vera með nokkra ása uppí erminni. Þannig tali Jóhanna Guðrún inn á myndinni og syngi gullfallegt lag. Hvað hlutverk Æðstastrumps varðar verður það í höndum Haralds G. Haraldsson og þá munu þeir Guðjón Davíð Karlsson og Kjartan Guðjónsson einnig tala fyrir bláa smáfólkið.-fgg






Fleiri fréttir

Sjá meira


×