Hundur sem hvarf í innbroti kominn aftur heim 10. ágúst 2011 16:18 Myndir Raffaellu af Snúllu töpuðust með tölvunum hennar, en hér má sjá túlkun hennar á atburðum helgarinnar. Mynd/Raffaella
Chihuahua hundurinn Snúlla, sem grunur lék á að hefði verið stolið þegar brotist var inn í íbúð í Norðurmýri aðfararnótt sunnudags, er kominn í leitirnar. Þýfið er þó enn ófundið. „Ég fór bara í smátíma út og kom aftur" segir Sharon Raffaella Sigurðardóttir, stúlkan sem lítur eftir Snúllu í sumar, en brotist var inn á heimili hennar einhverntíman á þeim þremur klukkutímum sem hún var að heiman síðastliðið laugardagskvöld. Rafaela segir þjófana hafa komið inn um svefnherbergisgluggann en hún telur líklegast að þeir hafi farið út um útidyrnar og þannig hafi Snúlla sloppið út. „Snúlla er í pössun hjá mér, mamma hennar er úti á landi og Snúlla er búin að vera hjá mér í allt sumar. Ég ber ábyrgð á að hún komist aftur heim til mömmu sinnar þannig að þetta var algjör martröð." segir Raffaella, en hún fann Snúllu loks á vappi nálægt Kennaraháskólanum. „Hún var haltrandi þegar ég sá hana." segir Raffaella sem eyddi nóttinni í að leita að Snúllu. „Ég vona að þeir hafi ekki meitt hana. Þetta var alls ekki gaman." Tveimur mac-tölvum var stolið af Raffaellu, auk tónhlöðu, tveggja flakkara og stafræns teikniborðs, en Raffaella er hönnuður og tapaði stórum hluta vinnu sinnar í innbrotinu. Hún heldur enn í vonina að þjófunum snúist hugur og skili þýfinu og hún ítrekar að hún vilji engan mann kæra. „Þetta er vinnan mín. Ég vil bara fá gögnin mín aftur og ég er tilbúin að borga fundarlaun. Ég vil ekki kæra."
Tengdar fréttir Grunur um að hundi hafi verið stolið í innbroti Brotist var inn í íbúð í fjölbýlishúsi í Norðurmýrinni í Reykjavík laust eftir miðnætti í nótt. Innbrotsþjófarnir fóru inn um svefnherbergisglugga og höfðu á brott með sér tvær fartölvur. Húsráðendur sakna einnig chihuahua-hunds, en ekki er ljóst hvort að hinir óprúttnu aðilar hafi tekið hann með sér eða hann hreinlega sloppið út. Málið er í rannsókn. 7. ágúst 2011 09:23 Mest lesið Úkraínumenn aðstoða uppreisnarmenn í Malí gegn Wagner-liðum Erlent „Fólkið verður hreinlega að rísa upp“ Innlent Um þúsund bréfberar misst fingur eða framan af fingri á fimm árum Erlent Mælir gegn notkun á teflonvörum Innlent Skorar á Guðrúnu að fallast ekki á lausn Helga frá störfum Innlent Þolinmæði Færeyinga gagnvart Norðurlandaráðinu á þrotum Erlent Fólk byrjað að fá forsetaafslátt Innlent Hægt veður í dag en myndarleg lægð á leiðinni Veður Átta enn í lífshættu eftir árásina mannskæðu í Southport Erlent Reyna að fá Ísrael til að ráðast ekki á Beirút Erlent Fleiri fréttir Almennir borgara eltu uppi þjófa í tveimur aðskildum málum Hlaupið marki líklega upphaf á aukinni virkni í Kötlu Skorar á Guðrúnu að fallast ekki á lausn Helga frá störfum „Fólkið verður hreinlega að rísa upp“ Glæsileg 64 ára gömul rúta vekur mikla athygli Þyrlusveitin sinnti óvanalegu útkalli á Helgafelli Fólk byrjað að fá forsetaafslátt Mælir gegn notkun á teflonvörum Taumlaus græðgi, hlaup og umdeild bílakaup „Ekkert forsetabíla-hókuspókusprútt hér alla daga“ Frétti á eftir samstarfsfólki að ekki væri óskað eftir vinnuframlagi Einn slasaður í mótorhjólaslysi við Látrabjarg Íslenskir þjóðbúningar vekja lukku á Ólafsvöku Mohamad vill flytja af landi brott Enn mikið vatn í ám þótt dregið hafi úr rigningu Eigandi Brimborgar gefur upp viðskiptakjörin Einn besti dagur sumarsins í Reykjavík um helgina Rannsaka þátt rútubílstjóra sem fylgdist með hraðanum í síma Bílakaup verðandi forseta Heilmiklar skemmdir sem mun taka sinn tíma að gera við Engin merki um hlaupóróa lengur Kortleggja gamlar sundlaugabyggingar um allt land Ferðamenn í vanda í ám á Fjallabaksleið og Þórsmörk Fékk 549.127 krónur í afslátt af bílnum Hringvegurinn opnaður en ökumenn beðnir um að sýna tillitssemi Handteknir við að stela dósum úr gám Þrír drengir handteknir eftir rúðubrot og átök við lögreglu Vatnshæð lækkar áfram en hlaupið ekki alveg búið Málum vegna dyrabjöllumyndavéla muni fjölga Síðasta ávarp Guðna í embætti: „Þið eruð geggjuð!“ Sjá meira
Grunur um að hundi hafi verið stolið í innbroti Brotist var inn í íbúð í fjölbýlishúsi í Norðurmýrinni í Reykjavík laust eftir miðnætti í nótt. Innbrotsþjófarnir fóru inn um svefnherbergisglugga og höfðu á brott með sér tvær fartölvur. Húsráðendur sakna einnig chihuahua-hunds, en ekki er ljóst hvort að hinir óprúttnu aðilar hafi tekið hann með sér eða hann hreinlega sloppið út. Málið er í rannsókn. 7. ágúst 2011 09:23