Innlent

Frakki féll í hver þegar hann tók ljósmynd

Myndin tengist fréttinni ekki beint
Myndin tengist fréttinni ekki beint úr safni
Franskur ferðamaður féll í hver í Reykjadal upp af Hveragerði um klukkan eitt í dag.

Samkvæmt upplýsingum frá varðstjóra hjá lögreglunni á Selfossi var ferðamaðurinn að taka ljósmyndir og rann til. Hann endaði með báðar fætur ofan í hverinum.

Hann hlaut fyrsta og annan stigs bruna á báðum fótum og upp á kvið.

Hann leitaði sér sjálfur aðstoðar á heilsugæslustöðinni í Hveragerði en var fluttur þaðan með sjúkrabíl á Landspítalann í Fossvogi þar sem hann dvelur nú.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×