Innlent

Kominn úr öndunarvél og færður af gjörgæslu í dag

Boði Logason skrifar
Karlmaður á fimmtugsaldri, sem var stunginn í hálsinn með hnífi á veitingastaðnum Monte Carlo á fimmtudagskvöld, er kominn úr öndunarvél og verður færður af gjörgæsludeild Landspítalans í dag, samkvæmt upplýsingum frá vakthafandi lækni á gjörgæslu. Nánari upplýsingar er ekki að fá um líðan mannsins.

Árásarmaðurinn, sem er tæplega fertugur með erlent ríkisfang, hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 29. júlí næstkomandi. Lögregla hefur yfirheyrt fjölda vitna sem voru á staðnum þegar árásin var gerð en hún er rannsökuð sem stórfelld líkamsárás.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×