Innlent

Hveragerði blómstrar um helgina

Frá Blómstrandi dögum á Hveragerði í fyrra.
Frá Blómstrandi dögum á Hveragerði í fyrra.
Bæjarhátíð Hveragerðisbæjar, sem ber nafnið Blómstrandi dagar, verður haldin nú um helgina, og munu bæjarbúar sameinast um að skreyta hverfi sín og garða í öllum regnbogans litum.

Hverfunum verður skipt upp eftir litum, og munu gestir því geta virt fyrir sér venjuleg hverfi í bjartari búningum en gengur og gerist. Verðlaun verða svo veitt fyrir skreytingarnar á fölskylduskemmtun sem fram fer á sunnudeginum.

Mikið framboð verður af skemmtun á hátíðinni, sem mun einkennast af tónlist, ís, leik og útivist. Dagskrá Blómstrandi daga má nálgast á heimasíðu bæjarins, www.hveragerdi.is.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×