Stjórnlagaráð: Ráðherra sitji í 8 ár og auðlindirnar séu þjóðarinnar 19. júlí 2011 12:30 Stjórnlagaráð Mynd/Gva
Enginn má gegna sama ráðherraembætti lengur en í átta ár og auðlindir eiga að vera ævarandi eign þjóðarinnar samkvæmt fyrstu drögum stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá. Drög stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá hefjast á aðfararorðum en þar segir meðal annars að með henni eigi efla hamingju meðal Íslendinga og komandi kynslóða Fyrstu þrjár greinar nýrrar stjórnarskrár fjalla um undirstöður stjórnskipunar landsins en þar er kveðið á um þrískiptingu ríkisvaldsins. Næst er kafli um mannréttindi sem hefst á orðunum: ,,Öllum skal tryggður réttur til að lifa með reisn." Þá kemur fram að í lögum megi kveða á um kirkjuskipan ríkisins en ekki tekið fram hver þjóðkirkjan skuli vera. Þ.e. hún njóti ekki lengur verndar stjórnarskrárinnar heldur verði hún ákveðin með almennum lögum. Í 31. gr. kemur fram að auðlindir í náttúru Íslands, sem ekki eru í einkaeigu, skulu vera sameiginlega og ævarandi eign þjóðarinnar. Að enginn geti fengið þær, eða réttindi tengd þeim, til eignar eða varanlegra afnota og því má aldrei selja þær eða veðsetja, eins og það er orðað í frumvarpsdrögunum. Þá er eignarrétturinn tryggður í mannréttindakafla stjórnarskrárinnar en engu að síður segir að nýting eignarréttar skuli ekki ganga gegn almannahag. Í kaflanum um Alþingi kemur fram að heimilt sé að skipta landinu í kjördæmi en að atkvæði kjósenda alls staðar á landinu skuli engu að síður vega jafnt. Þriðjungur þingmanna getur innan þriggja daga frá lokaafgreiðslu lagafrumvarps ákveðið að leggja það undir atkvæði allra kosningabærra manna. Þá geta 15% prósent kjósenda sömuleiðis krafist þjóðaratkvæðagreiðslu um lög sem Alþingi hefur samþykkt. Tvö prósent kjósenda geta jafnframt krafist þess að þingmál verði tekið fyrir á alþingi og fimmtán prósent geta krafist þess að frumvarp verði lagt fyrir Alþingi. Í kaflanum um forseta Íslands segir að enginn megi sitja lengur en þrjú kjörtímabil en ráðherrar mega ekki sitja í sama embætti lengur en í átta ár. Framundan eru þó umræður um frumvarpsdrögin en að því er fram kemur á vef stjórnlagaráðs má búast við því að frumvarpið taki einhverjum breytingum þar.
Mest lesið Yfir hundrað handteknir í óeirðum í Lundúnum Erlent Guðni um bílakaupin umdeildu: „Myndir þú kaupa bíl af svona fólki?“ Innlent Besta veðrið um verslunarmannahelgina? Veður Bíll hafnaði utan vegar í Hafnarfirði Innlent Hefði horft á lokakvöldið hefði Hera Björk komist áfram Innlent Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílveltu í Sjálandi Innlent Guðni lítillátur þegar hann sagði að allt myndi bjargast án hans Innlent Ekki miklar líkur á meiriháttar milliríkjaátökum Erlent Egill telur eitt og annað óljóst við bílatilboð Ástþórs Innlent Skólastjóri Rimaskóla í áfalli Innlent Fleiri fréttir Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílveltu í Sjálandi Hefði horft á lokakvöldið hefði Hera Björk komist áfram Bíll hafnaði utan vegar í Hafnarfirði Guðni lítillátur þegar hann sagði að allt myndi bjargast án hans Allt klárt hjá lögreglu og sjálfboðaliðum fyrir þjóðhátíð Guðni um bílakaupin umdeildu: „Myndir þú kaupa bíl af svona fólki?“ Guðni kveður og skemmdarverk á grunnskóla Þrír fluttir með sjúkrabíl eftir árekstur Egill telur eitt og annað óljóst við bílatilboð Ástþórs „Þetta gekk ágætlega, takk fyrir mig“ Von á rúmlega þrjú hundruð gestum við embættistöku Höllu Styðja íþróttafólk og hvetja ríkið til að gera slíkt hið sama Þurfi að fylgja betur eftir reglum um byggð við sprungur Árekstur jepplings og fólksbíls á Vesturlandsvegi Embættistaka forseta, veðrið um helgina og skrýtnar gistináttatölur Hjólhýsi sem búið var í að engu orðið Ekki hrifin af breytingum og óskar Höllu velfarnaðar Skólastjóri Rimaskóla í áfalli Ástand vega á Íslandi mikið áhyggjuefni Verulega hvasst í Eyjum á laugardaginn Solaris misnoti kerfið til að hrekja Helga Magnús úr starfi Segist ekki geta ábyrgst öryggi þeirra sem dvelja næturlangt í Grindavík Rúður brotnar í Rimaskóla Ofbeldi verði að lokum eina svarið gegn „cancel culture og vók hyski“ Skjálfti að stærð 3 á Reykjanestá Fjörutíu tonn af eldfimu fiskafóðri í stórskemmdum bílnum Hneykslast á ákvörðun ríkissaksóknara Flutningabíll varð alelda í Þrengslum Vegfarendum stafi hætta af auglýsingaskiltum „Munum hafa nægan tíma til að bregðast við ef við þurfum“ Sjá meira