Innlent

„Menn trúa ekki að flugmönnum sé alvara“

Erna Hauksdóttir formaður Samtaka ferðaþjónustunnar
Erna Hauksdóttir formaður Samtaka ferðaþjónustunnar
Samtök ferðaþjónustunnar segjast treysta því að samið verði í tíma svo ferðaþjónustufyrirtækin þurfi ekki á nýjan leik að taka á móti afpöntunum vegna truflana á flugi.

„Það vekur furðu meðal ferðaþjónustufyrirtækja að flugmenn boði nú yfirvinnubann á nýjan leik. Það er háönn í greininni og það eru allir að leggjast á eitt við að halda uppi umferð um Suðurland vegna náttúruhamfara. Menn trúa ekki að flugmönnum sé alvara,“ segir í tilkynningu frá samtökunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×