Þenkjandi róttæklingar boða til skólahalds 15. júlí 2011 14:04 Viðar Þorsteinsson Mynd/Anna Gunnarsdóttir
Róttæki sumarháskólinn er nýr og nokkuð óvenjulegur skóli sem tekur tímabundið til starfa í húsnæði ReykjavíkurAkademíunnar við Hringbraut í næsta mánuði. Óhætt er að segja að skólinn beri nafn með rentu þar sem barátta fyrir efnahagslegu réttlæti, femínisma, lýðræði og réttindum minnihlutahópa er á stefnuskránni. Að sögn Viðars Þorsteinssonar, kennara við skólann, verður námið ekki eingöngu af bóklegum toga heldur er leitast við að tengja saman róttæka hugmyndafræði og aðgerðir. „Við sem að skólanum stöndum höfum kynnst í gegnum nám eða aktívisma og erum þarna hugsjónafólk í sjálfboðavinnu sem telur að gera þurfi róttækar breytingar til að koma á jöfnuði í samfélaginu. Okkar von er sú að með því að vekja nemendur skólans til vitundar um innviði þjóðfélagsins náum við í leiðinni að breyta viðhorfi þeirra og virkja þá til þátttöku í baráttu fyrir jöfnuði; að námið verði hvati að niðurrifi og uppbyggingu. Enda nauðsynlegt að skilja þjóðfélagið til að geta stundað pólitík." Viðar segir skólann vera opinn og lýðræðislegan vettvang þar sem fólk úr öllum þjóðfélagsþrepum getur komið, fræðst, skoðað og rætt saman á gagnrýninn og róttækan hátt um íslenskt samfélag og valdastrúktúra þess. Hann tekur fram að viðfangsefnið verði jafnframt hægt að nálgast út frá ýmsum fræðilegum sjónarmiðum, femínisma, anarkisma og marxisma þar á meðal. „Eða allt eftir því hvort viðkomandi hefur áhuga á að skoða hvernig konur eru kúgaðar af feðraveldinu eða hvernig kynþáttahyggja birtist í stefnu ríkisstjórnarinnar í málefnum innflytjenda svo dæmi séu tekin," segir Viðar, sem ætlar sjálfur að taka fyrir helstu atriði í gagnrýni Karls Marx og Friedrichs Engels á kapítalískt hagkerfi. „Enda virðast þessar hugmyndir enn eiga fullt erindi þar sem hér hafa litlar breytingar orðið hvað sem hruni og eftirhreytum þess líður." Hvernig fer kennslan fram? „Námskeiðin eru sett saman úr námsstofum sem að jafnaði hafa hver sinn umsjónarmann," lýsir Viðar. „Eitt námskeið getur þannig verið sett saman úr tveimur eða þremur námsstofum í umsjón ólíkra einstaklinga og þeim raðað saman eftir skyldleika umfjöllunarefna. Engin krafa er gerð um að einstaklingur sitji allar námsstofur í hverju námskeiði og er hverri skipt upp í fyrirlestra og umræður eftir hentugleikum." Skólinn verður starfræktur dagana 13. - 18. ágúst. Þátttökugjalds og menntunar er ekki krafist. Hægt er að skrá sig í skólann á Facebook eða með því að senda tölvupóst á sumarhaskolinn@gmail.com. Nánar á sumarhaskolinn.perspiredbyiceland.com.roald@frettabladid.is
Mest lesið Guðni um bílakaupin umdeildu: „Myndir þú kaupa bíl af svona fólki?“ Innlent Sagði Harris nýlega „orðna svarta“ Erlent Vandræðasaga Helga: Skortur á hommum, meint „kerlingartussa“ og Facebook-þumallinn Innlent Samkomulag í höfn við höfuðpaura hryðjuverkaárásanna 11. september Erlent Besta veðrið um verslunarmannahelgina? Veður Yfir hundrað handteknir í óeirðum í Lundúnum Erlent Viðvörun gefin út vegna úlfs sem beit stúlku og drap púðluhund Erlent Ók á mann og stakk af Innlent Rangt að ráðuneytið hafi gefið út leiðbeiningar um kenninöfn Innlent Sautján ára ákærður fyrir morðið á stúlkunum í Southport Erlent Fleiri fréttir Vandræðasaga Helga: Skortur á hommum, meint „kerlingartussa“ og Facebook-þumallinn Ók á mann og stakk af Rangt að ráðuneytið hafi gefið út leiðbeiningar um kenninöfn Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílveltu í Sjálandi Hefði horft á lokakvöldið hefði Hera Björk komist áfram Bíll hafnaði utan vegar í Hafnarfirði Guðni lítillátur þegar hann sagði að allt myndi bjargast án hans Allt klárt hjá lögreglu og sjálfboðaliðum fyrir þjóðhátíð Guðni um bílakaupin umdeildu: „Myndir þú kaupa bíl af svona fólki?“ Guðni kveður og skemmdarverk á grunnskóla Þrír fluttir með sjúkrabíl eftir árekstur Egill telur eitt og annað óljóst við bílatilboð Ástþórs „Þetta gekk ágætlega, takk fyrir mig“ Von á rúmlega þrjú hundruð gestum við embættistöku Höllu Styðja íþróttafólk og hvetja ríkið til að gera slíkt hið sama Þurfi að fylgja betur eftir reglum um byggð við sprungur Árekstur jepplings og fólksbíls á Vesturlandsvegi Embættistaka forseta, veðrið um helgina og skrýtnar gistináttatölur Hjólhýsi sem búið var í að engu orðið Ekki hrifin af breytingum og óskar Höllu velfarnaðar Skólastjóri Rimaskóla í áfalli Ástand vega á Íslandi mikið áhyggjuefni Verulega hvasst í Eyjum á laugardaginn Solaris misnoti kerfið til að hrekja Helga Magnús úr starfi Segist ekki geta ábyrgst öryggi þeirra sem dvelja næturlangt í Grindavík Rúður brotnar í Rimaskóla Ofbeldi verði að lokum eina svarið gegn „cancel culture og vók hyski“ Skjálfti að stærð 3 á Reykjanestá Fjörutíu tonn af eldfimu fiskafóðri í stórskemmdum bílnum Hneykslast á ákvörðun ríkissaksóknara Sjá meira