Erlent

Sprengja sprakk í Malmö

Sprengja sprakk við myndbandaleigu í Malmö í Svíþjóð í nótt. Engin meiðsl urðu á fólki en talsverðar skemmdir urðu á nálægum húsum. Fyrir ofan myndbandaleiguna eru íbúðir og var íbúum þar verulega brugðið. Þeir urðu ekki varir við grunnsamlegar mannaferðir áður en sprengjan sprakk enda flestir í fasta svefni á þessum tíma. Sprengjunni var komið fyrir við inngang myndbandaleigunnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×