Innlent

Ræningjar handteknir í nótt

Tveir karlmenn um tvítugt frömdu rán í Bónus-vídeo við Smiðsbúð í Garðabæ undir miðnætti með því að hóta starfsstúlku með hnífi.

Hún lét að óskum þeirra og hurfu þeir á braut með peninga. Vitni að ráninu hlupu annan manninn uppi og héldu honum þar til lögregla kom á vettvang og handtók hann.

Fjölmennt lögreglulið var kallað út auk sérsveitarmanna frá Ríkislögreglustjóra og var hinn maðurinn handtekinn skömmu síðar.

Í nótt voru svo tveir til viðbótar handteknir eftir að hafa verið stöðvaðir á bíl, grunaðir um aðild að málinu. Allir gista nú fangagageymslur og bíða yfirheyrslu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×