Handbolti

Valskonur með enn einn stórsigurinn - unnu Hauka 43-17

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Rebekka Rut Skúladóttir var markahæst í Valsliðinu með átta mörk.
Rebekka Rut Skúladóttir var markahæst í Valsliðinu með átta mörk. Mynd/Stefán

Íslandsmeistarar Vals eru á svaka siglingu í kvennahandboltanum og Valsstelpurnar unnu sinn sjöunda deildarsigur í röð í dag þegar þær skelltu Haukum með 26 marka mun, 43-17. Valsvörnin hefur ennfremur haldið mótherjum sínum undir 20 mörkum í síðustu sex leikjum.

Systurnar Rebekka Rut og Hrafnhildur Skúladætur voru markahæstar í Valsliðinu og þriðja systirin, Dagný, kom ekki langt á eftir. Valsliðið hefur unnið fyrst fjóra deildarleiki ársins með samtals 88 marka mun eða 22 mörkum að meðaltali.

Stjörnukonur unnu þrettán marka sigur á FH í Kaplakrika, 33-20, eftir að hafa verið 13-12 yfir í hálfleik. Þetta var áttundi deildarsigur Garðabæjarliðsins í röð.

Fylkiskonur unnu sinn fyrsta sigur á nýju ári þegar þeir unnu 39-16 sigur á botnliði ÍR í Austurbergi. Fylkisliðið styrkti þar með stöðu sína í 4. sæti deildarinnar. Landsliðskonurnar Sunna María Einarsdóttir og Sunna Jónsdóttir skoruðu báðar sjö mörk fyrir Árbæjarliðið.

Úrslit og markaskorarar í N1 deild kvenna í dag:



Valur-Haukar 43-17 (22-7)


Mörk Vals: Rebekka Rut Skúladóttir 8, Hrafnhildur Ósk Skúladóttir 7, Dagný Skúladóttir 4, Anna Úrsúla Guðmundsdóttir 4, Hildigunnur Einarsdóttir 4, Ragnhildur Rósa Guðmundsdóttir 4, Kristín Guðmundsdóttir 3, Íris Ásta Pétursdóttir 3, Anett Köbli 3, Camilla Transel 2, Arndís María Erlingsdóttir 1.

Mörk Hauka: Erla Eiríksdóttir 4, Katerina Baumruk 4, Viktoria Valdimarsdóttir 3, Gunnhildur Pétursdóttir 3, Karen Helga Sigurjónsdóttir 1, Ásthildur Embla Friðgeirsdóttir 1, Sanda Sif Sigurjónsdóttir 1.

ÍR-Fylkir 16-39 (7-18)

Mörk ÍR: Silja Ísberg 5, Sif Jónsdóttir 5, Elzabita Kowal 4, Þorbjörg Anna Steinarsdóttir 2.

Mörk Fylkis: Sunna María Einarsdóttir 7, Sunna Jónsdóttir 7, Arna Valgerður Erlingsdóttir 5, Jóhanna Tryggvadóttir 4, Indíana Jóhannsdóttir 4, Nataly Sæunn Valencia 3, Elín Helga Jónsdóttir 3, Kristrún Steinþórsdóttir 2, Áslaug Gunnarsdóttir 2, Sigríður Hauksdóttir 1, Ragnheiður Matthíasdóttir 1.

FH-Stjarnan 20-33 (12-13)

Mörk FH: Heiðdís Rún Guðmundsdóttir 10, Bergliond Ósk Björgvinsdóttir 4, Aníta Mjöll Ægisdóttir 2, Sigrún Jóhannsdóttir 1, Steinunn Snorradóttir 1, Sigrún Gilsdóttir 1, Hind Hannesdóttir 1.

Mörk Stjörnunnar: Sólveig Lára Kjærnested 6, Hanna Guðrún Stefánsdóttir 6, Elísabet Gunnarsdóttir 6, Jóna Margrét Ragnarsdóttir 5, Guðrún H Guðjónsdóttir 3, Þórhildur Gunnarsdóttir 3, Hildur Harðardóttir 2, Kristín Jóhanna Clausen    2






Fleiri fréttir

Sjá meira


×