Handbolti

Stórsigur Fram gegn Fylki í N1-deild kvenna

Sigurður Elvar Þórólfsson skrifar
Karen Knútsdóttir skorar hér eitt af mörkum sínum gegn Fylki í kvöld.
Karen Knútsdóttir skorar hér eitt af mörkum sínum gegn Fylki í kvöld. Mynd/Anton

Fram vann stórsigur, 45-21, gegn Fylki í N1-deild kvenna í handbolta í kvöld og með sigrinum er Fram með 20 stig líkt og Valur og Stjarnan. Þessi þrjú lið skera sig algjörlega úr í deildinni en Fylkir er í fjórða sæti deildarinnar. Sigurbjörg Jóhannsdóttir skoraði 13 mörk fyrri Fram og Karen Knútsdóttir 7. Sunna María Einarsdóttir skoraði 7 mörk fyrir Fylki.

Mörk Fram: Sigurbjörg Jóhannsdóttir 13, Karen Knútsdóttir 7, Ásta Birna Gunnarsdóttir 5, Guðrún Þóra Hálfdánsdóttir 4, Pavla Nevarilova 4, Hildur Þorgeirsdóttir 4, Hafdís Hinriksdóttir 2, María Karlsdóttir 2, Birna Berg Haraldsdóttir 1, Steinunn Björnsdóttir 1.

Mörk Fylkis: Sunna María Einarsdóttir 7, Sunna Jónsdóttir 4, Unnur Ómarsdóttir 3, Sigríður Hauksdóttir 2, Arna Valgerður Erlingsdóttir 2, Jóhanna Kolbrún Tryggvadóttir 1, Elín Helga Jónsdóttir 1, Áslaug Gunnarsdóttir 1.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×