Innlent

Brennuvargar á ferð í nótt

Mynd úr safni.
Mynd úr safni.
Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu þurfti að bregðast við tveimur íkveikjum í gærkvöldi og í nótt. Fyrst var kveikt í ruslagámi  við verslanamiðstöð við Fjallkonuveg í Grafarvogi laust fyrir miðnætti.

Þar logaði glatt og lagði töluverðan reyk frá gámnum þegar slökkviliðið kom á vettvang og slökkti eldinn á svip stundu. Þá komu snögg viðbrögð liðsins í veg fyrir að eldur næði útbreiðslu í spítnahrúgu á bakvið Bernhöftsbakarí við Bergstaðastræti um tvö leitið í nótt. Brennuvargarnir eru ófundnir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×