Innlent

Ofsaakstur í Kópavogi

Mynd úr safni
Karl á þrítugsaldri var staðinn að hraðakstri á Nýbýlavegi í Kópavogi í gærkvöld samkvæmt fréttatilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Bíll hans mældist á 124 km hraða á móts við Álfabrekku en þarna er 50 km hámarkshraði. Ökumaðurinn, sem hefur áður verið tekinn fyrir hraðakstur, var færður á lögreglustöð og sviptur ökuréttindum til bráðabirgða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×