Innlent

Landsvirkjun gæti útvegað orku í fyrstu tvo áfanga Helguvíkur

Jónas Margeir Ingólfsson skrifar
Formaður Iðnaðarnefndar Alþingis segir að Landsvirkjun gæti útvegað orku í fyrstu tvo áfanga framkvæmdana í Helguvík ef samningar nást um verð. Ríkið eigi að leiða deiluna til lykta.

Iðnaðarnefnd Alþingis fundaði í dag um stöðuna á framkvæmdum í Helguvík en á fundinn mættu fulltrúar Landsvirkjunar, Norðuráls og Hs Orku. Framkvæmdirna í Helguvík eru í nokkurs konar pattstöðu en Norðurál og Hs Orka hafa ekki komist að niðurstöðu um orkuverð og málið endaði fyrir sænskum gerðardómi. Dómurinn skilar niðurstöðu sinni í lok september en formaður iðnaðarnefndar segir það mikilvægt að nýta tímann þangað til, til þess að koma framkvæmdum af stað.

„Það kom fram þarna að með frekari samningum um raforku, eins og t.d. við landsvirkjun upp á 100 til 150 megavött er þarna komin orka fyrir tvo áfanga. Þá segja þeir Norðurálsmenn að hægt sé að byrja strax og tvö þúsund manns gætu verið komnir til vinnu þarna strax frá því að framkvæmdir hæfust á ný."

Kristján telur að ríkisvaldið verði að taka að sér forystu í að leiða þessi mál til lykta. „Ég held að það sé fljótvirkast því það eru margir að kenna hvor öðrum um. Það er líka eins og allir sé að bíða eftir öllum hinum." Kristján tekur það hins vegar skýrt fram að samningar Landsvirkjunnar verði að vera gerðir á viðskiptalegum forsendum.

„Ég vil líka segja það að við verðum að horfa til þeirra erfiðleika sem íslensk þjóð er í í dag. Við verðum að hugsa um heildarhagsmuni lands og þjóðar, ekki bara skammtímahagsmuni Landsvirkjunar helur allra."

Kristján segir að ef framkvæmdir fara af stað geti það skilað ríkisjóði og sveitarfélögum einn milljarð króna í tekjur á mánuði.

Í samtali við fréttastofu segir hins vegar forstjóri Landsvirkjunnar alla orku í kerfi Landsvirkjunnar hafa verið selda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×