Innlent

Innbrot í dýraspítala og fjölmörg rúðubrot

Mynd/Haraldur Jónasson
Nóttin var heldur erilsöm hjá lögreglumönnum á höfuðborgarsvæðinu. Nokkuð var um pústra í miðbænum en þeir voru minniháttar og þá var brotist inn í Dýraspítalann í Víðidal í kringum miðnætti. Samkvæmt upplýsingum sem fengust hjá lögreglu liggur ekki fyrir hvort einhverju hafi verið stolið en enginn hefur verið handtekinn.

Þá voru rúður brotnar í bifreið við Grensásveg, verslun við Langholtsveg, í Fellaskóla og á skemmtistaðnum Kaffi París við Austurvöll. Einn ökumaður var stöðvaður vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengis í nótt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×