Handbolti

Karen: Skíttöpum í Höllinni ef við spilum svona

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Karen Knútsdóttir.
Karen Knútsdóttir. Mynd/Vilhelm
Karen Knútsdóttir skoraði 7 mörk fyrir Fram í kvöld þegar liðið tryggði sér sæti í bikarúrslitaleiknum annað árið í röð með því að vinna sjö marka sigur á HK, 32-25.

„Ég er ánægð með þennan sigur og vera komin í Höllina en þetta var ekki góður leikur af okkar hálfu. Við ætluðum að gera þetta af fullum krafti og klára þetta strax en það tókst ekki í kvöld," sagði Karen. Fram var 19-9 yfir í hálfleik en eftir 17 mínútna leik í seinni hálfleik var staðan orðin 23-19.

„Við ætluðum að byrja seinni hálfleik af krafti og klára þetta á fyrstu 10 mínútunum en við gerðum allt öfugt við það sem við ætluðum að gera. Við skíttöpum í Höllinni ef við ætlum að spila svona," sagði Karen en þær unnu næstu sex mínútur 6-0 eftir leikhlé frá Einari Jónssyni þjálfara.

„Við fengum aðeins að heyra það frá Einari og hann skerpti á nokkrum hlutum. Við náðum aðeins að rífa okkur upp og vinna þær með sjö mörkum," sagði Karen sem sagði að vanmat hafi aldrei verið inn í myndinni.

„Fyrir tveimur árum töpuðum við fyrir FH í undanúrslitunum og það situr ennþá alveg í manni. Maður þarf að klára hvern einasta leik í svona bikarkeppni og má ekki vera kominn í Höllina fyrir undanúrslitaleikinn," sagði Karen.

„Ég varð spennt eftir að hafa sé Val vinna í gær og langaði í Höllina aftur. Núna getum við farið að einbeita okkur að Valsliðinu," sagði Karen og bætti við:

„Þær eru búnar að vinna óþarflega marga úrslitaleiki á móti okkur en við unnum bikarinn síðast og ætlum bara að vinna hann aftur. Þetta verður skemmtilegur og erfiður úrslitaleikur því Valur er með hörkulið. Við þurfum að gera miklu miklu betur í þeim heldur en í kvöld og við leggjumst bara yfir það á næstu dögum," sagði Karen að lokum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×