Lífið

Afar hrifin hvort af öðru

Samkvæmt tímaritinu Star eru Gwyneth Paltrow og Matthew Morrison afskaplega hrifin hvort af öðru.
nordicphotos/getty
Samkvæmt tímaritinu Star eru Gwyneth Paltrow og Matthew Morrison afskaplega hrifin hvort af öðru. nordicphotos/getty
Tímaritið Star greinir frá því að sést hafi til Gwyneth Paltrow og Matthews Morrison snæða saman kvöldverð í London í lok mars. Eftir matinn færði parið sig yfir á Grosvenor House-hótelið þar sem þau sátu að snakki fram á nótt.

Leikararnir kynntust við tökur á sjónvarpsþættinum Glee og hefur tímaritið eftir heimildarmanni sínum að þau hafi strax fundið til hrifningar. „Það fór ekki framhjá neinum að þau voru mjög hrifin af hvort öðru og létu eins og ástfangnir táningar meðan á tökum stóð. Þau voru aldrei langt frá hvort öðru og Gwyneth gaf Matthew símanúmer sitt áður en hún lauk gestahlutverki sínu. Þau hafa verið í stöðugu sambandi síðan þá,“ var haft eftir innanbúðarmanni.

Morrison var staddur í London í lok síðasta mánaðar og því ákváðu leikararnir að nýta tækifærið, fá sér kvöldverð saman og minnast gamalla stunda. Paltrow er gift breska tónlistarmanninum Chris Martin og eiga þau saman tvö börn. Parið hefur þó sjaldan sést saman á almannafæri að undanförnu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.