Innlent

Malbikun við Kringluna

Mynd úr safni / GVA
Unnið verður í dag við malbikun á Kringlunni, austur akrein við innkeyrslu að bílastæðahúsi við Kringluna. Byrjað var um klukkan hálf átta í morgun, götukaflanum þá lokað og verður hann lokaður fram að hádegi.

Einnig verður unnið við malbikun á rampa frá Kringlunni inn á Miklubraut þegar ekið er til austurs. Byrjað verður á þeim kafla strax á eftir fyrri kaflanum og kaflinn hafður lokaður fram eftir degi. Frárein frá bensínstöð inn á Miklubraut lokast einnig.

Lögreglan beinir því til ökumanna að fara eftir vegmerkingum og aka með gát.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×