Einari Ágústi eignaður FM-hnakkinn 3. febrúar 2011 19:00
Á föstudagskvöldið mætti Ásgeir Kolbeinsson í viðtal í spjallþátt Loga Bergmanns á Stöð 2. Hann var þar beðinn um að útskýra uppruna orðsins FM-hnakki en Ásgeir hefur lengi verið spyrtur við hnakka-menninguna. Að sögn Ásgeirs má rekja orðið til tónleika Skítamórals á Akureyri fyrir þrettán árum. Þá hafi Samúel Bjarki Pétursson kvikmyndagerðarmaður verið að túbera á sér hárið með hárblásara. Og þá á Einar Ágúst Víðisson, þáverandi meðlimur Skítamórals, að hafa sagt: „Hann er að blása á sér hnakkann, FM-hnakkann." Einar Ágúst viðurkennir að hafa látið þessi orð falla, þeir hafi verið að missa af flugvél suður og lá mikið á. „Hann og Gunni Óla voru jafnlengi að hafa sig til." Í júníbyrjun 2008 lýsti tónlistamaðurinn Barði Jóhannsson því yfir í viðtali við Fréttablaðið að hann væri höfundur orðsins „hnakki". Það hefði fyrst heyrst í útvarpsþættinum Ólafi. „Já við Henrik [Björnsson tónlistarmaður] fundum orðið upp á sínum tíma," sagði Barði þá. Þeir vildu hins vegar ekkert láta hafa eftir sér þegar Fréttablaðið hafði uppi á þeim í gær. Ekki er hins vegar ólíklegt að orðið hafi flætt ómeðvitað milli þessara aðila því stjúpfaðir Einars Ágústar er bróðir pabba Barða. Og Einar Ágúst ætlar ekki að gera neitt sérstakt tilkall til þess. „Frændi minn Barði er reyndar vel að þessu orði kominn." - fgg
Mest lesið Bráðum verður hún frú Beast Lífið Kynntist eiginkonunni á swingklúbbi Lífið Heimili Walter White til sölu eftir áralangan ágang aðdáenda Lífið Jeff Baena eiginmaður Aubrey Plaza látinn Lífið Saga sagði já við Sturlu Lífið „Þurfti að berjast við tárin“ þegar Vigdís mætti í settið Lífið Af hverju er þessi kona á öllum auglýsingaskiltum? Menning Léttir að heyra öskrið í dóttur sinni Lífið Atli Steinn genginn í það heilaga Lífið Mætti á undan Katrínu Tönju til landsins og kom henni á óvart Lífið Fleiri fréttir Bráðum verður hún frú Beast Heimili Walter White til sölu eftir áralangan ágang aðdáenda Jeff Baena eiginmaður Aubrey Plaza látinn „Þurfti að berjast við tárin“ þegar Vigdís mætti í settið Fréttatían: Áramótin, Kryddsíld og útlönd Kynntist eiginkonunni á swingklúbbi Léttir að heyra öskrið í dóttur sinni Ekkert einvígi í Söngvakeppninni 2025 Mætti á undan Katrínu Tönju til landsins og kom henni á óvart Bak við tjöldin í Kryddsíldinni 2024 Kúkakallinn í Kópavogi rataði aftur í Kviss ársins Aron Kristinn og Lára eiga von á barni Anný Rós og Guðlaugur sjóðheitt par Snúin aftur á Instagram og kynnir nýjan þátt á Netflix Bjarni sveiflaði servíettunni af gleði Margir rugli saman áramótaheitum og markmiðum „Það eru fleiri með köggla en þú“ Lúxusíbúð Kára og Erlu til Bandaríkjamanna Fár fyrsta íslenska stuttmyndin á Disney+ Illa vegið að íslenskum bjór Arnarsson mætti rétt fyrir árslok „Ég þekki mann sem að móðgast yfir dagskránni á RÚV“ John Capodice er látinn Glænýtt par á glænýju ári Saga sagði já við Sturlu Atli Steinn genginn í það heilaga Tíu stiga frost stöðvaði ekki hugrakka landsmenn „Kattarkonan“ látin 84 ára að aldri Hersir og Rósa eiga von á barni Dans Laufeyjar kominn í Fortnite Sjá meira