Innlent

Ekki stækkað enn um sinn

Álverið
Álverið fréttablaðið/hari
Ótímabært er að kjósa aftur um frekari stækkun álversins í Straumsvík að mati Alcan og Hafnarfjarðarbæjar. Skoðanakönnun þessara aðila, um atvinnumál og álverið í Straumsvík, gefur til kynna að þrír af hverjum fjórum íbúum Hafnarfjarðar telji álverið og yfirstandandi framleiðsluaukningu hafa jákvæð áhrif á bæjarfélagið: það skapi störf og tekjur fyrir bæjarsjóð. Væri kosið í dag myndu tæp 60 prósent styðja stækkun, sum að uppfylltum skilyrðum, svo sem um umhverfismál.- kóþ




Fleiri fréttir

Sjá meira


×