Innlent

Árekstur: Talið að ökumaðurinn hafi fengið aðsvif

Árekstur varð á mótum Suðurlandsbrautar og Reykjavegar í morgun og er Suðurlandsbrautin lokuð til vesturs af þeim sökum. Óhappið varð með þeim hætti að fólksbíl var ekið af fullum krafti aftan á annan og telur lögregla líklegt að ökumaðurinn hafi fengið aðsvif af einhverju tagi. Fyrst var greint frá því að sorphirðubíll hefði lent í árekstrinum en það er ekki rétt. Sá bíll kom hinsvegar að óhappinu og tilkynnti lögreglu um það.

Þrír voru í bílunum og voru allir fluttir á slysadeild til aðhlynningar. Líklegast verður hægt að opna veginn á allra næstu mínútum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×