Innlent

Fimm handteknir eftir bílveltu í bílastæðahúsi

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Lögreglan rannsakar málið.
Lögreglan rannsakar málið.
Fimm manns voru handteknir um eittleytið í nótt eftir að fólksbíl var velt í bílastæðahúsi við Höfðatún í Reykjavík í nótt. Að sögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu var bíllinn á hvolfi þegar komið var að og er hann talinn ónýtur. Ekki liggur fyrir hvernig tókst að velta bílnum.

Erfiðlega gekk að fá fimmenningana til að viðurkenna hver þeirra hafði ekið bílnum en þeir voru í skýrslutökum hjá lögreglu þegar fréttastofa hafði samband við lögreglu í morgunsárið.

Þá hafði lögreglan afskipti af ökumanni á Langholtsvegi um þrjúleytið í nótt. Maðurinn reyndist vera á stolnum bíl. Hann var jafnframt undir áhrifum fíkniefna og með fíkniefni meðferðis í bílnum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×