Viðskipti innlent

Árborg borgar FME 400.000 í sátt

Fjármálaeftirlitið (FME) og sveitarfélagið Árborg hafa gert með sér sátt vegna brots sveitarfélagsins á lögum um verðbréfaviðskipti. Með sáttinni er Árborg gert að borga 400.000 krónur fyrir brotið.

Í umfjöllun á vefsíðu Fjármálaeftirlitsins segir að með sáttinni gekkst sveitarfélagið Árborg, sem útgefandi skráðra skuldabréfa, við því að hafa brotið gegn fyrrgreindum lögum með því að hafa ekki skilað lista yfir aðila fjárhagslega tengda fruminnherjum til Fjármálaeftirlitsins innan tilskilins frests þrátt fyrir áminningu þar um.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×