Innlent

Formaður segir starf á áætlun

róbert spanó
róbert spanó
Róbert R. Spanó, formaður rannsóknarnefndar sem rannsaka á viðbrögð og starfshætti þjóðkirkjunnar í kjölfar ásakana á hendur Ólafi Skúlasyni biskupi, segir starf nefndarinnar vera á áætlun.

Nefndin hefur aflað gagna um málið. Tekin hafa verið viðtöl við þá aðila sem eiga í hlut og starfsmenn kirkjunnar og þá tekur við skýrslugerð og frágangur. Ekki er ljóst hvenær vinnu nefndarinnar lýkur.

Nefndin er skipuð þeim Róbert R. Spanó, Berglindi Guðmundsdóttur og Þorgeiri Inga Njálssyni. - sv




Fleiri fréttir

Sjá meira


×