Lífið

Vala Grand og Gillz svitna saman

MYNDIR/EÁ
MYNDIR/EÁ

Á meðfylgjandi myndum má sjá Egil „Gillz" Einarsson, Völu Grand, Ragnheiði Ragnarsdóttur, Kolbrúnu Pálínu Helgadóttur, Sigrúnu Lilju Guðjónsdóttur, Heiðrúnu Sigurðardóttur og Svavar Jóhannsson svitna saman með sérhannaða 17 kg poka á milli læranna.

Þau mættu saman í brennslutíma sem ber yfirskriftina CAGE Fitness í Sporthúsinu í dag. Um er að ræða ný námskeið á Íslandi sem ganga út á að hamast á umræddum pokum eða púðum sem eru með sérútbúnum handföngum í 30 mínútur stanslaust og árangurinn lætur ekki á sér standa þegar kemur að mótun líkamans en meðal brennsla í einum Cage Fitness tíma er 500-1000 kaloríur.

Sjá myndband hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×