Innlent

Skiptir um skoðanir á ESB reglulega

Jón Gnarr borgarstjóri í Reykjavík
Jón Gnarr borgarstjóri í Reykjavík
Jón Gnarr borgarstjóri í Reykjavík segir í dagbók sinni á Facebook að hann skipti reglulega um skoðanir á Evrópusambandinu reglulega en hann sat kynningarfund um ESB í dag.

Hann segir að hann hafi byrjað daginn á því að hitta Steingrím J. Sigfússon, fjármálaráðherra og því næst hafi hann hitt nokkra Reykvíkinga og rætt við þá um „ýmis mál."

Jón Gnarr tók einnig upp fyrsta þáttinn af Tvímælalaust, sem hefst á Stöð 2 á morgun en þar rifja þeir Sigurjón Kjartansson upp gamla takta.

Borgarstjórinn endar svo færslu sína á orðinu: „Þreyttur"




Fleiri fréttir

Sjá meira


×