Innlent

Lögreglan stöðvaði áttatíu ökumenn í nótt

80 ökumenn voru stöðvaður í eftirliti lögreglunnar á mótum Kringlumýrarbrautar og Sæbrautar í Reykjavík á milli klukkan eitt og tvö í nótt.

Einn ökumaður reyndist undir áhrifum fíkniefna, annar réttindalaus og nokkrir án ökuskírteina, en engin ölvaður. Einn til viðbótar var tekinn annarsstaðar í nótt grunaður um fíkniefnaakstur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×