Innlent

73 of margir á hundrað manna vínveitingastað

Miðbærinn á fullum krafti um helgarnótt. Myndin er úr safni.
Miðbærinn á fullum krafti um helgarnótt. Myndin er úr safni.
173 gestir voru á einum þeirra vínveitingastaða sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lokaði um síðustu helgi, en staðurinn hafði aðeins leyfi fyrir 100 gestum að hámarki.

Á öðrum stað reyndust einnig of margir umfram leyfilegan gestafjölda, auk þess sem innandyra voru ungmenni er veitt hafði verið áfengi, en hvorutveggja er brot á ákvæðum laga og reglna. Þá urðu lögreglumenn vitni að því að gestir báru áfengi út af staðnum.

Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum þurfti lögreglan á höfuðborgarsvæðinu að loka fjórum stöðum um helgina.

Lögreglan sendi nýlega leyfishöfum nokkurra vínveitingahúsa eftirfarandi boð: „Að gefnu tilefni vill lögreglan á höfuðborgarsvæðinu benda á ákv. 19. gr. áfengislaga: „Bannað er að bera með sér áfengi inn á veitingastaði, annað en það sem þangað er flutt til heimilla veitinga. Á sama hátt er bannað að bera með sér áfengi út af veitingastað."

„Talsvert hefur verið um að gestir vínveitingastaða hafi borið með sér áfengi í glösum og flöskum út af stöðunum að næturlagi um helgar. Glerílátin hafa síðan verið brotin með tilheyrandi hávaða og ónæði. Í nokkrum tilvikum hafa þau verið notuð til að kasta í eða berja á fólki með alvarlegum afleiðingum.

Vinsamlegast bendið dyravörðum á mikilvægi þess að fylgja samviskusamlega eftir ofangreindu ákvæði. Lögreglan mun á næstunni fylgjast sérstaklega með að það verði gert,“ segir ennfremur í skilaboðum lögreglunnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×