Lífið

Turin Brakes til Íslands

Í uppáhaldi
Turin Brakes er uppáhaldshljómsveit tónleikahaldarans Valþórs Sverrissonar.
Í uppáhaldi Turin Brakes er uppáhaldshljómsveit tónleikahaldarans Valþórs Sverrissonar.
Breska hljómsveitin Turin Brakes naut talsverðra vinsælda upp úr aldamótum, og hefur stöðugt sent frá sér tónlist síðan þá. Hljómsveitin er á leiðinni til Íslands í janúar og kemur fram í Fríkirkjunni.

„Þeir eru mjög spenntir fyrir ferðinni til Íslands.“ segir Valþór Örn Sverrisson tónleikahaldari, vefstjóri og starfsmaður Nova.

Valþór og bræður hans, Sverrir Birgir og Pétur Rúnar, flytja inn bresku hljómsveitina Turin Brakes á næsta ári. Hljómsveitin kemur fram í Fríkirkjunni 20. janúar, en upphitun verður í höndum Jóns Jónssonar og hljómsveitar.

Stjarna Turin Brakes reis hátt upp úr aldamótum. Hljómsveitin var tilnefnd til hinna virtu Mercury-verðlauna árið 2001 fyrir fyrstu breiðskífuna sína, The Optimist LP. Eftir fylgdu plöturnar Ether Song og Jackinabox sem nutu talsverðra vinsælda. Minna hefur farið fyrir hljómsveitinni síðustu ár þótt hún hafi aldrei lagt árar í bát.

Spurður hvernig honum datt í hug að flytja inn Turin Brakes segir Valþór svarið einfalt: „Þetta er uppáhaldsbandið mitt. Ég hlusta á þá á hverju kvöldi,“ segir hann.

Síðasta breiðskífa Turin Brakes, Outbursts, kom út á síðasta ári og hlaut góðar viðtökur gagnrýnenda. Skoska tónlistartímaritið Clash gaf henni til að mynda fjórar stjörnur af fimm mögulegum. Hljómsveitin sendi frá sér stuttskífu í ár sem innihélt tökulög ásamt einu nýju lagi.

Valþór segir hljómsveitina flytja blöndu af nýju efni og gömlu á tónleikum. Hann er spenntur fyrir því að eyða helgi með uppáhaldshljómsveitinni sinni í janúar. „Við ætlum í Bláa lónið og út að borða á Panorama,“ segir hann. „Ég bauð þeim lúxusferð.“

Miðasala hefst í versluninni Noland í Kringlunni á föstudag. Nánari upplýsingar er að finna á Facebook.

atlifannar@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.