Innlent

Íslenskt berg komið til ekta Íslendinga

Hjónin búin að koma grjótinu í góðar hendur Þau Þorsteinn Þorleifsson og Snjólaug María Dagsdóttir sjá ekki eftir steinunum sem gleðja nú margan manninn í Gimli. mynd/helgi dan
Hjónin búin að koma grjótinu í góðar hendur Þau Þorsteinn Þorleifsson og Snjólaug María Dagsdóttir sjá ekki eftir steinunum sem gleðja nú margan manninn í Gimli. mynd/helgi dan
Steinasafn hjónanna Snjólaugar Maríu Dagsdóttur og Þorsteins Þorleifssonar, var flutt til Winnipeg í Kanada. Það er nú til sýnis á New Iceland Heritage Museum, eða Sögusafni Nýja-Íslands í Gimli í Manitoba.

Þorsteinn segir safnið samanstanda af grjóti sem Dagur Óskarsson hóf að safna upp úr miðri síðustu öld en megninu af því safnaði Jón, sonur Dags um langt tímabil.

„Það er gott að vita af safninu þar ytra, þetta eru jafnvel meiri Íslendingar en við,“ segir Þorsteinn. Það var þó ekki vandkvæðalaust að koma safninu út en eins og alkunna er mun það ólöglegt að flytja berg á milli landa. Þjóðræknifélagið, sem flutti safnið út, fékk þó undanþágu.

Iceland Express flutti safnið endurgjaldslaust, að sögn Svavars Gestssonar, ræðismanns í Kanada, í sinni fyrstu áætlunarferð til Winnipeg, í júní og þurfti félagið að fá til þess sérstakt leyfi en það hafði ekki leyfi til slíkra fraktflutninga. Síðan héldu þau Þorsteinn og Snjólaug María utan í lok júnímánaðar til þess að setja safnið upp.

Það var svo um síðustu mánaðamót, á Íslendingadeginum, sem Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra afhenti Sögusafninu í Gimli steinasafnið.

Þorsteinn segir að í safninu séu nánast allar bergtegundir sem fyrirfinnast hér á landi. „Það var afskaplega áhrifamikið að vera þarna í Gimli og sjá verslanir með íslensku nafni og heyra fólk tala sín á milli á lýtalausri íslensku. En einnig var það skemmtilegt þegar fólk var að snerta bergið og sagðist vera að snerta íslenskt berg í fyrsta sinn jafnvel þótt það væri af íslensku bergi brotið,“ segir Þorsteinn.

Hann segir enn fremur að jarðfræðideild Háskólans í Manitoba hafi tekið þessu afar vel og ætli að nýta sér tækifæri sem nú gefst þeim við túnfótinn til að kynnast íslensku bergi. jse@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×