Handbolti

Valskonur örugglega inn í undanúrslitin

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Anna Úrsúla Guðmundsdóttir skoraði fimm mörk.
Anna Úrsúla Guðmundsdóttir skoraði fimm mörk. Mynd/Stefán
Íslandsmeistarar Vals tryggðu sér sæti í undanúrslitum Eimskipsbikar kvenna í handbolta með fjórtán marka sigri á ÍBV, 35-21 í Vestmannaeyjum í kvöld. Valsliðið var 13-7 yfir í hálfleik.

Kristín Guðmundsdóttir og Karólína B. Gunnarsdóttir voru markahæstar í liðim Vals með sjö mörk hvor en Íris Ásta Pétursdóttir skoraði 6 mörk. Ester Óskarsdóttir skoraði 7 mörk fyrir ÍBV.

ÍBV-Valur 21-35 (7-13)

Mörk ÍBV: Ester Óskarsdóttir 7, Guðbjörg Guðmannsdóttir 4, Hildur Jónsdóttir 3, Sigríður Lára Garðarsdóttir 3, Þórsteina Sigurbjörnsdóttir 2, Renata Kári Horvath 1, Aníta Elíasdóttir 1.

Mörk Vals: Kristín Guðmundsdóttir 7, Karólína Bæhrenz Gunnarsdóttir 7, Íris Ásta Pétursdóttir 6, Anna Úrsúla Guðmundsdóttir 5, Hrafnhildur Ósk Skúladóttir 4, Hildigunnur Einarsdóttir 2, Anett Köbli 2, Arndís María Erlingsdóttir 1, Camilla Transel 1.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×