Innlent

Tveir jarðskjálftar fundust greinilega í Grindavík

Tveir jarðskjálftar fundust greinilega í Grindavík rétt eftir klukkan hálf átta í morgun. Skjálftarnir mældust 2,4 og 2,0 á Richter og áttu upptök sín um 2,4 kílómetra norðan við bæinn.

Hlustandi í Grindavík sem hafði samband við fréttastofuna sagðist hafa fundið skjálftana mjög greinilega enda áttu þeir upptök sín skammt frá bænum, eða 2,4 kílómetra fyrir norðan hann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×