Lífið

Meira að segja Logi Bergmann lifnaði allur við

MYNDIR/EÁ
MYNDIR/EÁ

Meðfylgjandi myndir voru teknar á frumsýningu barnaleikritsins Fjársjóðsleit með Ísgerði í leikhúsinu Norðurpóllinn á Seltjarnarnesi.

Frumsýningargestir nutu sýningarinnar sem gengur út á að finna fjársjóð í nánu samstarfi við leikarana Ísgerði Elfu Gunnarsdóttur og Magnús Guðmundsson.

Eins og sjá má á myndunum lifnaði Logi Bergmann sjónvarpsmaður allur við á sýningunni. Þá má einnig sjá Ólaf Stephensen ritstjóra Fréttablaðsins, Breka Logason fréttamann Stöðvar 2, Mörtu Maríu Jónasdóttur aðstoðarritstjóra Pressan.is, Bergljótu Arnalds leikkonu, Ólöfu Erlu Einarsdóttur grafískan hönnuð verksins og Hafdísi Huld Þrastardóttur söngkonu svo einhverjir séu nefndir.

Fjársjóðsleitin á midi.is.

Video tekið í lok sýningarinnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×