Innlent

Reynt að lokka stelpur með nammi - sjötta málið á stuttum tíma

Erla Hlynsdóttir skrifar
Börnunum ber saman að um dökkleita bíla sé að ræða. Misjafnt er þó  hvort þau segja bílinn svartan, gráan eða brúnan.
Börnunum ber saman að um dökkleita bíla sé að ræða. Misjafnt er þó hvort þau segja bílinn svartan, gráan eða brúnan. Mynd úr safni
Menn á litlum dökkgráum bíl buðu tveimur tíu ára stúlkum sælgæti gegn því að þær kæmu upp í bíl með sér um miðjan dag í gær. Atvikið átti sér stað á Breiðvangi í Hafnarfirði, við Engjadalsskóla.

Stúlkurnar hlupu í burtu, sem lögreglan segir hárrétt viðbrögð.

Málið var tilkynnt til lögreglu og hafa nú alls sex tilkynningar borist á síðustu tveimur vikum um menn sem bjóða börnum upp í bíl til sín.

„Þetta eru óvenju margar tilkynningar. Þessi mál koma alltaf upp öðru hvoru, en ekki svona mörg," segir Björgvin Björgvinsson, yfirmaður kynferðisbrotadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. „Við tökum þessu alvarlega," segir hann.

Aukið eftirlit við skóla

Hann segir lýsingar þeirra barna sem boðið hefur verið far hjá ókunnugum að undanförnu allar á þann veg að um dökkleitan bíl sé að ræða, oftast svartan. Í bílnum er síðan ýmist einn eða tveir menn sem bjóða börnunum sælgæti eða leikföng.

Utan þessa eru lýsingarnar ekki skýrar og hefur lögregla því á litlu að byggja við leit sína að mönnunum. Þannig er ekki hægt að fullyrða að um sömu menn sé alltaf að ræða.

Vegna þess hversu óljósar lýsingarnar eru getur lögregla lítið gert, enn sem komið er, annað en að halda saman þeim tilkynningum sem komið hafa. Auk þess sinna lögreglumenn á merktum og ómerktum lögreglubifreiðum eftirliti við skóla.

Enginn liggur undir grun vegna málanna.

Eitt málið upplýst - faðir að sækja syni sína

Í eitt skipti af þessum sex sem tilkynnt hafa verið náði drengur bílnúmeri niður. Þegar lögregla skoðaði málið betur kom í ljós að þar var á ferð faðir sem var að sækja syni sína á íþróttaæfingu og bauð öðrum dreng að koma líka. Drengurinn afþakkaði boðið og höfðu foreldrar hans samband við lögreglu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×