Vinna bara á oddaárunum eins og San Antonio Spurs Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. apríl 2011 16:00 Fannar Ólafsson, fyrirliði KR, lyftir hér Íslandsbikarnum í gærkvöldi. Mynd/Anton
KR-ingar tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn í Iceland Express deild karla í gær með því að vinna fjórða leikinn í úrslitaeinvígi sínu á móti Stjörnunni. Þetta er í þriðja sinn frá og með árinu 2007 sem Fannar Ólafsson, fyrirliði KR, lyfti Íslandsbikarnum glæsilega en líkt og hjá NBA-liðinu San Antonio Spurs þá hafa KR-ingar bara unnið titilinn á oddaárum síðan að Fannar kom í Vesturbæinn. San Antonio Spurs hefur orðið fjórum sinnum NBA-meistari með Tim Duncan innanborðs og allir fjórir titlarnir hafa komið á oddaárum. Spurs hefur unnið titilinn í öll skiptin sem liðið hefur komist alla leið í úrslitaeinvígið. Fannar Ólafsson kom til KR árið 2005-2006 og líkt og hjá Duncan varð hann meistari á sínu öðru ári með félaginu. Duncan spilaði sitt fyrsta tímabil 1997-98 og vann sinn fyrsta titil árið eftir. KR-ingar hafa unnið titilinn í öll skiptin sem liðið hefur komist alla leið í úrslitaeinvígið með Fannar innanborðs. KR-ingar hafa ekki komist í lokaúrslitin á sléttu ári síðan að þeir unnu titilinn árið 2000. 2002, 2006 og 2010 töpuðu þeir fyrir verðandi meisurum í undanúrslitunum og 2004 og 2008 duttu þeir út í fyrstu umferð. Svart-hvítir og vinna bara á oddaárunumMeistaratitlar San Antonio Spurs með Tim Duncan1999 Vann New York Knicks 4-1 í úrslitunum2003 Vann New Jersey Nets 4-2 í úrslitunum2005 Vann Detroit Pistons 4-3 í úrslitunum2007 Vann Cleveland Cavaliers 4-0 í úrslitunum- hafa aldrei tapað í lokaúrslitum með DuncanMeistaratitlar KR með Fannar Ólafsson2007 Vann Njarðvík 3-1 í úrslitunum2009 Vann Grindavík 3-2 í úrslitunum2011 Vann Stjörnuna 3-1 í úrslitunum- hafa aldrei tapað í lokaúrslitum með Fannar
Dominos-deild karla Mest lesið „Hún er búin að vera algjör klettur í þessu öllu“ Körfubolti Sveindís fær engar skýringar: „Ég hef greinilega ekki verið í uppáhaldi“ Fótbolti Martin: „Fór rosalega fyrir brjóstið á mér að heyra það“ Körfubolti Utan vallar: Pedersen ætti að vera þjóðhetja Körfubolti Í beinni: Frakkland - Ísland | Þyngsta prófið fyrir Ísland Fótbolti „Ég trúi þessu varla“ Sport Gylfi orðinn Víkingur Íslenski boltinn „Ef þeir fá ekki gul spjöld halda grófu brotin bara áfram“ Fótbolti Carragher kallaði Ferdinand trúð Enski boltinn Útlit fyrir að Kjartan fylli skarð Gylfa hjá Val Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Eins gott að þeir fari að fokking semja“ Uppgjörið: Stjarnan - Grindavík 77-64 | Slökktu á gestunum í seinni hálfleik „Hún er búin að vera algjör klettur í þessu öllu“ Utan vallar: Pedersen ætti að vera þjóðhetja Martin: „Fór rosalega fyrir brjóstið á mér að heyra það“ „Þetta er eins og að vera dömpað“ Aðrir í VIP-sætum þeirra sem skráðu söguna Berjast um að fá Ísland til sín á EM: „Viljum fá eitthvað á móti“ Sex fara fyrir Ísland á sitt fyrsta stórmót Elvar og Martin: Hvernig þetta byrjaði, hvernig þetta gengur Luka Doncic líklega á leið til Íslands í sumar „Þetta er stærra en að vinna einhverja titla“ Sigur Ungverja á Ítalíu dugði skammt Uppgjörið: Ísland - Tyrkland 83-71 | Ísland tryggði sér sæti á EM Martin komst í hóp þeirra gömlu og mjög góðu Popovich kemur ekki til baka á þessu tímabili Loksins fékk Lakers að sjá Luka eins og við þekkjum hann Kári kemur inn í hópinn gegn Tyrkjum Uppselt á körfuboltalandsleikinn á morgun Ruglaðist á Tramadol og Toradol og féll á lyfjaprófi Slagur um stól formanns KKÍ LeBron með fjörutíu stig í fjarveru Doncic: „Hann storkar lögmálunum“ Fær ekki að spila á Íslandi vegna gamals dóms: „Ekki ógn við þjóðina“ Bætti skólamet pabba síns Undrið Wembanyama frá það sem eftir lifir leiktíðar Martin: Skemmtilegra að tryggja þetta fyrir fullri höll Uppgjör: Ungverjaland - Ísland 87-78 | Afleitur annar leikhluti mjög dýr Verður aðeins sá átjándi til að spila níutíu landsleiki Gætu tryggt EM sætið í kvöld: „Skrítin staða að vera í“ Fimm sigrar og eitt grátlegt tap í síðustu sjö landsleikjum Martins Sjá meira