Innlent

Þyrla fann þrjá villta feðga á hálendinu

Áhöfn þyrlu Landheglisgæslunnar fann þrjá villta feðga á hálendinu norðaustur af Laugarvatni um klukkan átta í gærkvöldi og flutti þá að bíl þeirra niðri á láglendi.

Fjöldi björgunarsveitarmanna, ásamt nokkrum sporhundum, voru þá byrjaður leit, en talið var að mennirnir hefðu ætlað í göngu í Klukkuskarði. Þar fyrir neðan hafði bíll þeirra funadist síðdegis.

Leitarskilyrði voru góð og var mikil áhersla lögð á að finna þá sem fyrst þar sem faðirinn er um áttrætt. Þeir fundust svo heilir á húfi undir Hrútatindi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×