Innlent

Bifhjólamaður mældur á 237 km hraða

Bifhjólamaður var mældur á 237 kílþómetra hraða á Garðsvegi á Suðurnesjum um klukkan hálf níu og hvarf hann lögreglumönnum sjónum á auga bragði.

Fyrst mældlist hann á heldur minni hraða  en þegar hann varð lögregubílsins var jók  hann hraðann og var kominn upp í 237 kílómetra þegar þeir mættust og var þá enn að auka hraðann.

Hann fannst ekki þrátt fyrir eftirgrennslan, en lögreglan er nú að skoða upptökur úr nýrri hraðamyndavél á Garðsveginum. Þetta er einhver al mesti hraði sem lögreglan hefur mælt til þessa. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×