Samstarf

Metið staðfest hjá Guinness

"Það var ævintýri líkast að koma upp á hásléttu Suðurheimskautslandsins, þessa hvítu auðn sem virtist engan endi ætla að taka," segir Hlynur.
"Það var ævintýri líkast að koma upp á hásléttu Suðurheimskautslandsins, þessa hvítu auðn sem virtist engan endi ætla að taka," segir Hlynur.
„Þetta er frábært og auðvitað fyrst og fremst meiri háttar viðurkenning á því starfi sem við höfum verið að vinna," hafði Hlynur Bjarki Sigurðsson, starfsmaður hjá Arctic Trucks, að segja í gær en þá varð ljóst að fyrirtækið hafði tryggt sér sess á spjöldum Heimsmetabókar Guinness fyrir hröðustu yfirferð á landi á suðurskautinu.

Kazakhstan National Geographic Society, KNGS, stóð fyrir leiðangrinum sem var farinn frá Novo til suðurpólsins í desember á síðasta ári. Hlynur var bílstjóri og bifvélavirki og auk hans tveir starfsmenn frá KNGS og einn frá The Antarctica Company. Ekið var á tveimur Arctic Trucks-bílum, það er fjórhjóladrifnum AT44 Expedition sem eru smíðaðir á Toyota Hilux.

Ferðalangarnir óku meðal annars yfir stórt, ókannað sprungubelti og upp í mikla hæð. Færi var oft erfitt, gríðarlegur kuldi og langar veglengdir sem þurfti að keyra án þess að fá eldsneyti. Engu að síður tók það Hlyn og félaga aðeins 108 tíma að keyra 2.308 kílómetra á pólinn sem jafngildir meðalhraða upp á 21,4 kílómetra á klukkustund.

Annað íslenskt fyrirtæki, IceCool með Gunnar Egilsson í fararbroddi setti met á Suðurheimskautinu árið 2005. Þá ók Gunnar á sérútbúnum sex hjóla Ford 1.100 kílómetra leið frá Patriot Hills til Suðurpólsins. Leiðangurinn tók 69,3 tíma eða að meðaltali 16 kílómetra á klukkustund.Fréttablaðið/Stefán
Þeir gerðu tvisvar hlé á ferðinni, fyrst skömmu eftir að lagt var af stað í rúma tólf tíma til að fá hæðaraðlögun en hæðin sem farið er upp í jafngildir um 4.000 metrum. Seinna stoppuðu þeir í rúma fimm tíma til að bæta á eldsneyti, elda og hvíla sig.

Félagarnir settu síðan í raun annað óskráð heimsmet á heimleiðinni sem tók þá aðeins 84 tíma að aka, eða sem gildir meðalhraða upp á 27,5 kílómetra á klukkustund.

Hlynur segir viðurkenninguna frá Guinness vera ánægjulegan endi á ferð sem hafi þó fyrst og fremst verið farin í þeim tilgangi að undirbúa vísindaleiðangur á suðurpólinn nú í desember á vegum KNGS. „Þetta var mikill sigur fyrir bílana sem stóðust prófraunina með prýði og allt gekk eins og í sögu. Viðurkenningarskjal Guinness er góð staðfesting á því."

Við þetta má bæta að Arctic Trucks smíðaði annan bíl fyrir Thomson Reuters „Eikon" byggðan á Toyota Tacoma sem mun reyna að bæta heimsmetið í desember.

Hann leggur af stað frá Patriot Hills sem er styttri leið að suðurpólnum og á því ágæta möguleika að ná markmiðinu.

roald@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×