Barnslát: Konan enn á sjúkrahúsi Andri Ólafsson skrifar 4. júlí 2011 13:03 Einhver lagði blómvönd við Hótel Frón í gær til minningar um barnið sem lést.
Barnið sem fannst látið í ruslagámi við Hótel Frón á Laugardaginn verður krufið í dag. Móðir þess er enn á sjúkrahúsi, en hún var úrskurðuð í gæsluvarðhald í gær. Móðirin hefur legið á sjúkrahúsi, síðan komið var með hana þangað fyrir hádegi á laugardaginn, en allt bendir til þess að skömmu áður hafi hún fætt barn sitt á hótelherbergi á Hótel Fróni og komið því síðan fyrir í ruslagámi þar fyrir utan. Hún leyndi þungun sinni fyrir samstarfsfélögum sínum og fyrrverandi unnusta en það var hann sem ók henni á sjúkrahúsið. Hún var úrskurðuð í gæsluvarðhald í gær, á spítalanum, þar sem ástand hennar leyfði ekki að hún yrði flutt í Héraðsdóm Reykjavíkur. Barn konunnar var fullburða drengur. Krufningin í dag á að leiða í ljós hvort hann hafi látist fyrir eða eftir að honum var komið fyrir í ruslagáminum. Að öðru leyti heldur rannsókn lögreglu áfram og skýrslur verða teknar af vitnum í dag. Í hegningarlögum segir að ef móðir deyðir barn sitt í fæðingunni eða undir eins og það er fætt, og ætla má, að hún hafi gert það vegna neyðar, ótta um hneisu eða sökum veiklaðs eða ruglaðs hugarástands, sem hún hefur komist í við fæðinguna, þá varðar það fangelsi allt að 6 árum. Þá segir einnig að láti maður farast fyrir að koma manni til hjálpar, sem staddur er í lífsháska, þótt hann gæti gert það án þess að stofna lífi eða heilbrigði sjálfs sín eða annarra í háska, þá varðar það fangelsi allt að 2 árum.
Mest lesið Úkraínumenn aðstoða uppreisnarmenn í Malí gegn Wagner-liðum Erlent „Fólkið verður hreinlega að rísa upp“ Innlent Um þúsund bréfberar misst fingur eða framan af fingri á fimm árum Erlent Mælir gegn notkun á teflonvörum Innlent Skorar á Guðrúnu að fallast ekki á lausn Helga frá störfum Innlent Þolinmæði Færeyinga gagnvart Norðurlandaráðinu á þrotum Erlent Fólk byrjað að fá forsetaafslátt Innlent Hægt veður í dag en myndarleg lægð á leiðinni Veður Átta enn í lífshættu eftir árásina mannskæðu í Southport Erlent Reyna að fá Ísrael til að ráðast ekki á Beirút Erlent Fleiri fréttir Almennir borgara eltu uppi þjófa í tveimur aðskildum málum Hlaupið marki líklega upphaf á aukinni virkni í Kötlu Skorar á Guðrúnu að fallast ekki á lausn Helga frá störfum „Fólkið verður hreinlega að rísa upp“ Glæsileg 64 ára gömul rúta vekur mikla athygli Þyrlusveitin sinnti óvanalegu útkalli á Helgafelli Fólk byrjað að fá forsetaafslátt Mælir gegn notkun á teflonvörum Taumlaus græðgi, hlaup og umdeild bílakaup „Ekkert forsetabíla-hókuspókusprútt hér alla daga“ Frétti á eftir samstarfsfólki að ekki væri óskað eftir vinnuframlagi Einn slasaður í mótorhjólaslysi við Látrabjarg Íslenskir þjóðbúningar vekja lukku á Ólafsvöku Mohamad vill flytja af landi brott Enn mikið vatn í ám þótt dregið hafi úr rigningu Eigandi Brimborgar gefur upp viðskiptakjörin Einn besti dagur sumarsins í Reykjavík um helgina Rannsaka þátt rútubílstjóra sem fylgdist með hraðanum í síma Bílakaup verðandi forseta Heilmiklar skemmdir sem mun taka sinn tíma að gera við Engin merki um hlaupóróa lengur Kortleggja gamlar sundlaugabyggingar um allt land Ferðamenn í vanda í ám á Fjallabaksleið og Þórsmörk Fékk 549.127 krónur í afslátt af bílnum Hringvegurinn opnaður en ökumenn beðnir um að sýna tillitssemi Handteknir við að stela dósum úr gám Þrír drengir handteknir eftir rúðubrot og átök við lögreglu Vatnshæð lækkar áfram en hlaupið ekki alveg búið Málum vegna dyrabjöllumyndavéla muni fjölga Síðasta ávarp Guðna í embætti: „Þið eruð geggjuð!“ Sjá meira