Lífið

Vill banna fóstureyðingar

Á móti fóstureyðingum Justin Bieber er á móti fóstureyðingum, jafnvel í þeim tilvikum þegar konan hefur orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi.NordicPHotos/Getty
Á móti fóstureyðingum Justin Bieber er á móti fóstureyðingum, jafnvel í þeim tilvikum þegar konan hefur orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi.NordicPHotos/Getty
Justin Bieber hefur hneykslað marga í Ameríku með yfirlýsingum sínum um fóstureyðingar og ameríska heilbrigðiskerfið. Íslenskir aðdáendur hans flykkjast í bíó um helgina.

Yfir þúsund miðar hafa selst í forsölu hér á landi á frumsýningarhelgi tónlistar- og heimildarmyndarinnar um Justin Bieber, Never Say Never. Sigurður Victor Chelbat hjá Sambíóunum segir þetta vera nokkuð mikið miðað við íslenskan markað því yfirleitt mæti Íslendingar bara á staðinn og láti sig hafa það að standa í röð. Sigurður Victor, sem er ekki í hinum hefðbundna Bieber-markhópi, segir myndina koma á óvart en bætir því við að hún sé ekki sýnd með íslenskum texta í þrívíddarútgáfunni. Bieber hefur undanfarið verið einn vinsælasti erlendi tónlistarmaðurinn á Íslandi en eins og kom fram í Fréttablaðinu fyrir nokkru seldist síðasti diskur hans, My World 2.0, í þrjú þúsund eintökum.

Bieber sneri reyndar öllu á hvolf í Bandaríkjunum um helgina þegar bandaríska tónlistartímaritið Rolling Stone birti ítarlegt viðtal við hann. Þar opinberaði hann að hann væri sannkristinn hægrimaður. Bieber byrjaði viðtalið á því að ráðast gegn bandaríska heilbrigðiskerfinu og stillti sér næst upp við hliðina á þeim sem eru á móti fóstureyðingum.

„Ég er á móti þeim, þetta er eins og að drepa lítið barn,“ hefur Rolling Stone eftir poppstjörnunni ungu. Hann heldur síðan áfram á svipuðum slóðum þegar hann er spurður hvort hann sé þá líka á móti fóstureyðingum eftir kynferðislegt ofbeldi.

„Auðvitað er slíkt alltaf sorglegt en ég trúi því að allt sem gerist hafi einhvern tilgang. Í þessu tilviki er auðvitað erfitt að koma auga á tilganginn en hann er einhver. Ég hef hins vegar ekki verið í þessari aðstöðu og get því ekki sest í dómarasæti.“

Víst er að þessi ummæli munu vekja misjöfn viðbrögð hjá bandarískum fjölmiðlum enda eru fóstureyðingar eitt eldfimasta málið í bandarísku samfélagi. Samkvæmt New York Daily News er Bieber af sannkristnu fólki kominn og hlaut víst afar strangt kristilegt uppeldi, sem ætti að einhverju leyti að varpa ljósi á orð hans í Rolling Stone.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.