Lífið

Friðrika brákuð eftir bílslys

Sársaukafullt Rikka er með brákað bringubein, sem þýðir meðal annars að það er erfitt fyrir hana að hlæja vegna sársauka.
Fréttablaðið/Arnþór
Sársaukafullt Rikka er með brákað bringubein, sem þýðir meðal annars að það er erfitt fyrir hana að hlæja vegna sársauka. Fréttablaðið/Arnþór
„Þetta er alveg skelfilegt fyrir manneskju eins og mig sem er hlæjandi allan sólarhringinn,“ segir sjónvarpskonan Friðrika Hjördís Geirsdóttir, best þekkt sem Rikka. Hún getur ekki hlegið án þess að finna til því á fimmtudaginn var hún farþegi í bíl sem lenti í árekstri og þar brákaði hún bringubeinið.

„Ég veit ekki hvort þetta kom eftir beltið eða hvað, því það gerðist allt svo hratt,“ segir Rikka, sem þakkar Guði fyrir að ekki fór verr.

Brákað bringubein er kannski ekki alvarlegustu meiðslin og lætur ekki mikið yfir sér að utanverðu. Slík meiðsl geta hins vegar verið þeim mun sársaukafullari og erfið og þannig eru allar hreyfingar með öndunarfærunum ákaflega erfiðar. Rikka segist til að mynda hafa átt ákaflega erfitt á Eddunni á laugardagskvöldið.

„Ég gat ekkert hlegið og það var virkilega erfitt, að geta ekki skellt rækilega upp úr með öllu þessu fyndna fólki í salinn. En svona er bara lífið.“

Rikka hefur að undanförnu stjórnað svokölluðum cupcakes-námskeiðum sem notið hafa mikilla vinsælda en vegna meiðslanna hefur hún þurft að aflýsa nokkrum námskeiðum. Rikka segist þó ekki kvíða verkefnaleysi, hún hafi nóg að gera heima fyrir. Almennt er talið að það taki sex til sjö vikur að jafna sig að fullu af brákuðu bringubeini en Rikka er hörð af sér.

„Ég ætla mér að verða góð innan skamms.“- fgg






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.