Lífið

Hefner í það heilaga

Gengur kirkjugólf Hugh Hefner ætlar að ganga í það heilaga hinn 18. júní. Bróðir hans verður svaramaður.NordicPhotos/Getty
Gengur kirkjugólf Hugh Hefner ætlar að ganga í það heilaga hinn 18. júní. Bróðir hans verður svaramaður.NordicPhotos/Getty
Hugh Hefner hefur tilkynnt að hann hyggist kvænast hinni brjóstgóðu Crystal Harris hinn 18. júní. Athöfnin fer að sjálfsögðu fram á Playboy-setrinu. Þetta kom fram í spjallþætti Piers Morgan á CNN.

Bróðir Hughs verður svaramaður hans í brúðkaupinu og tveir yngstu synir hans, Marston og Cooper, verða fylgdarsveinar við athöfnina. Crystal ætlar hins vegar að hafa bestu vinkonu sína Önu sem brúðarmey og systur Crystal verða henni til halds og trausts.

Hugh hefur tvívegis verið giftur, annars vegar Mildred Williams og hins vegar Kimberley Conrad. Aðeins sextíu ára aldursmunur er á parinu; Hefner er 84 ára en Crystal er 24 ára. Varla þarf að taka það fram að Crystal hefur prýtt síður Playboy-tímaritsins og þannig lágu leiðir þeirra saman.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.