Lífið

Gert að laga hreiminn

Cheryl Cole er í hálfgerðri My Fair Lady meðferð hjá bandarískum talmálssérfræðingum en bandarískir framleiðendur X-Factor hafa gert henni að losa sig við geordie-hreiminn sinn.
Cheryl Cole er í hálfgerðri My Fair Lady meðferð hjá bandarískum talmálssérfræðingum en bandarískir framleiðendur X-Factor hafa gert henni að losa sig við geordie-hreiminn sinn.
Breska söngkonan Cheryl Cole hyggst hasla sér völl í bandarísku sjónvarpi sem dómari í raunveruleikaþáttaröðinni X-Factor. Hún á þó erfitt verkefni fyrir höndum.

Cheryl Cole er ein vinsælasta söngkona Bretlands og hefur um árabil verið dómari í bresku X-Factor-þáttunum ásamt Simon Cowell. Og hlotið mikið lof fyrir enda alþýðleg með eindæmum með þykkan hreim.

Bandarískir sjónvarpsframleiðendur eru hins vegar ekki par hrifnir af því hvernig Cole talar og hafa skipað henni að losa sig við geordie-hreiminn sinn.

Samkvæmt Daily Mail hafa Kanarnir áhyggjur af því að bandarískir sjónvarpsáhorfendur eigi hvorki eftir að skilja upp né niður í Cheryl Cole þegar hún byrji að tala. Og að slíkt væri hreinlega móðgun við bandaríska sjónvarpsáhorfendur. Söngkonunni, sem er ættuð frá Newcastle, hefur verið gert að hreinsa rækilega til í orðaforða sínum og forðast slanguryrði.

Og meðal orða sem eru á bannlista Cole má nefna „babe" en Cole notar það til að lýsa fallegum konum. Þá má hún ekki segja „bum" fyrir rass heldur nota frekar orðið „butt" og forðast orðið „cookies" fyrir kex og segja heldur „biscuits".

Samkvæmt Daily Mail hefur Cole leitað til sama tungumálasérfræðings og Sharon Osbourne notaðist við þegar hún vildi hljóma ögn fágaðri í bandarísku sjónvarpi.

Cole og hrokagikkurinn Simon Cowell munu sitja í dómnefndinni en ekki hefur verið gengið frá því hver fær þriðja sætið. Upphaflega var talið að George Michael myndi hreppa það en Cowell vísaði því á bug. Samkvæmt breskum og bandarískum fjölmiðlum er Nicole Scherzinger, söngkona Pussycat Dolls og unnusta Lewis Hamilton, líklegust til að hreppa hnossið en hún stóð sig vel sem gestadómari nýverið að mati Cowell.

freyrgigja@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×