Innlent

Víðtækari heimildir lögreglu boðaðar

Ögmundur Jónasson vill auka rannsóknarheimildir íslenskrar lögreglu svo hún sé í stakk búin til að takast á við skipulagða glæpahópa hér á landi.
Ögmundur Jónasson vill auka rannsóknarheimildir íslenskrar lögreglu svo hún sé í stakk búin til að takast á við skipulagða glæpahópa hér á landi.
Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra boðaði á Alþingi í gær vilja sinn til að lögregla fengi víðtækari rannsóknarheimildir til að rannsaka starfsemi skipulagðra glæpahópa. Hann kvað frumvarp þessa efnis vera í smiðum í innanríkisráðuneytinu. Málið hefði verið kynnt í ríkisstjórn.

Tilefni þessa var fyrirspurn Ólafar Nordal alþingismanns um viðbrögð stjórnvalda við fregnum af vaxandi umfangi skipulagðrar glæpastarfsemi hér á landi, sem hún sagði gríðarlega ógn við íslenskt samfélag. „Nýjustu heimildir frá lögreglunni herma að skipulögð glæpastarfsemi á Íslandi sé að færast í vöxt, sé orðin umfangsmeiri og brotin alvarlegri," sagði innanríkisráðherra í svari sínu.

„Hér erum við að tala um fíkniefnasölu, mansal, peningaþvætti, vopnasmygl og vopnasölu og fjárkúgun af grófustu tegund." Ögmundur sagði enn fremur að greiningardeild Ríkislögreglustjóra hefði nýlega gefið út hættumat vegna vísbendinga um vaxandi spennu í íslenskum undirheimum. Telji deildin vaxandi hættu á að til átaka og jafnvel uppgjörs komi í íslenskum undirheimum þar sem tekist verði á um fíkniefnamarkaði og stöðu á öðrum sviðum skipulagðrar glæpastarfsemi. Allt bendi til þess að vélhjóladeildin MC Iceland hljóti viðurkenningu sem fullgild deild í Hells Angels og að nýr hópur íslenskra brotamanna hafi verið myndaður gagngert til þess að bregðast við breyttri stöðu í íslensku undirheimum.

„Þessi þróun felur í sér í senn möguleika og ógn við öryggi almennings, starfsmenn lögreglu og tollþjónustu," sagði ráðherra. „Íslenska lögreglan hefur um árabil fylgst vel með þróun glæpagengja á Íslandi og utan þess og gripið til aðgerða til að koma í veg fyrir að slíkir hópar skjóti hér rótum. Ljóst er að efla þarf lögregluna enn frekar á þessu sviði þannig að henni sé gert kleift að fara fram með eins markvissum hætti og framast er unnt," sagði Ögmundur og nefndi fyrirbyggjandi rannsóknarheimildir, þó með því skilyrði að þær yrðu áfram veittar á grundvelli dómsúrskurðar. Slíkar heimildir lögreglu veittu möguleika á að rannsaka starfsemi skipulagðra glæpahópa sem grunaðir séu um alvarlega brotastarfsemi ekki síður en einstaklinga.

jss@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×