Lífið

Rapparinn Ghostface Killah til Íslands

Bandaríski rapparinn Ghostface Killah, meðlimur hljómsveitarinnar Wu-Tang Clan, stígur á svið á Nasa laugardagskvöldið 2. apríl í tilefni af tískuhátíðinni Reykjavík Fashion Festival, RFF.

„Þetta er einn af merkustu röppurum síðustu tuttugu ára," segir Steinþór Helgi Arnsteinsson, einn af skipuleggjendum tónleikanna. „Hann hefur á sér goðsagnakenndan stimpil og er búinn að vera virkur og ferskur í langan tíma."

Wu-Tang Clan er ein áhrifamesta hipphoppsveit síðasta áratugar tuttugustu aldarinnar. Hljómsveitinni skaut upp á stjörnuhimininn með frumraun sinni Enter The Wu-Tang (36 Chambers) árið 1993. Þrátt fyrir að flestir hinna meðlima Wu-Tang Clan hafi gefið út sólóplötur eða hliðarverkefni á undan Ghostface þá hefur sólóferill hans verið farsælli en flestallra hinna.

Undanfarið hefur hann komið fram á mörgum tískuvikum, þar á meðal í Kaupmannahöfn og London. Hann bað sérstaklega um að fá að koma fram á RFF-hátíðinni og tóku skipuleggjendur hennar vel í þá bón. Að sögn Steinþórs Helga hefði undir venjulegum kringumstæðum verið alltof dýrt að fá Ghostface til Íslands en vegna þess að um tískuhátíð er að ræða gengu samningaviðræðurnar greiðlega fyrir sig.

Fimm manna hópur verður með honum á sviðinu á Nasa og telur Steinþór að líklegt sé að einhver annar úr Wu-Tang Clan taki einnig þátt í tónleikunum.

Kanadíska söngkonan Peaches kom fram á Reykjavík Fashion Festival á síðasta ári við glimrandi góðar undirtektir. „Tónlistardagskráin gekk vonum framar í fyrra. Það var stappað á tónleikunum á Nasa og við vildum halda sömu partístemningu og hjá Peaches. Ég held að við höfum hitt naglann á höfuðið með Ghostface Killah," segir Steinþór.

Miðasala á tónleikana hefst á föstudaginn á Midi.is. Sin Fang kemur einnig fram á Nasa og líklegt er að aðrir listamenn bætist við dagskrána.

freyr@frettabladid.is

RFF





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.