Innlent

Notaður reiðbúnaður stöðvaður í tollinum

Enn sendir fólk notaðan reiðbúnað til landsins þrátt fyrir að hér hafi geisað hestapest sem valdið hefur miklu tjóni. Mynd/úr safni.
Enn sendir fólk notaðan reiðbúnað til landsins þrátt fyrir að hér hafi geisað hestapest sem valdið hefur miklu tjóni. Mynd/úr safni.
Matvælastofnun hefur nú til vinnslu mál sem kom upp eftir að tollgæslan stöðvaði sendingu erlendis frá með notuðum reiðtygjum og fatnaði, samkvæmt upplýsingum sem Fréttablaðið fékk hjá embætti Tollstjóra í gær.

Sendingin sem stöðvuð var um miðjan janúar kom frá Austurríki, samkvæmt upplýsingum embættisins, og var stíluð á einstakling hér. Hún hafði að geyma notuð beisli, taumgjarðir, ábreiður og reiðfatnað.

Mál af svipuðum toga kom upp í nóvember síðastliðnum þegar notuð reiðtygi og óhreinn reiðfatnaður fundust við tollskoðun á bíl sem var að koma erlendis frá með gámaflutningaskipi. Bíllinn var einnig mjög óhreinn og var greinilega að koma beint úr umhverfi hesta.

Matvælastofnun og tollgæslan hafa ítrekað varað við innflutningi á notuðum reiðtygjum og -fatnaði vegna smithættu. Í skýrslu sem Mast og Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum hafa gefið út um hóstapestina sem herjað hefur á íslenska hrossastofninn segir meðal annars að ekki sé ljóst hvenær eða hvernig smitefnið barst til landsins en spjótin beinist meðal annars að ólöglegum innflutningi notaðra reiðtygja.

„Það virðist hafa færst í vöxt að hestamenn taki ýmsan búnað með sér milli landa, einkum mél, en öllum ætti nú að vera ljós sú mikla áhætta sem slíkum innflutningi fylgir," segir í skýrslunni og bætt er við að hestaveikin hafi valdið mikilli röskun á hestatengdri starfsemi og þar með miklu fjárhagslegu tjóni. -jss




Fleiri fréttir

Sjá meira


×