Lífið

Hart barist í Eurovision

Búið er að velja lögin 43 sem keppa í Eurovision í Düsseldorf í vor. Búast má við harðri keppni enda taka mörg frambærileg lög þátt í þetta sinn.

Nú er ljóst hvaða 43 lög taka þátt í Eurovision-keppninni í Düsseldorf í maí. Vinir Sjonna stíga á svið með lagið Aftur heim í undanúrslitunum fyrir Íslands hönd 10. maí ásamt nítján öðrum löndum, þar á meðal Noregi, Póllandi, Grikklandi, Serbíu og Rússlandi. Í hinum undanúrslitunum 12. maí eigast við þjóðir á borð við Svíþjóð, Danmörku, Írland og Ísrael. Úrslitin sjálf ráðast svo 12. maí.

Ítalía tekur þátt í Eurovision í fyrsta sinn í þrettán ár og fer sjálfkrafa í úrslitin rétt eins og Bretland, Frakkland, Spánn og Þýskaland. Fulltrúi Ítala verður Rafael Gualazzi með lagið Madness of Love á meðan strákabandið Blue syngur fyrir hönd Bretlands hið grípandi I Can. Tvíburarnir Jeward syngja Lipstick fyrir hönd Íra. Lagið er nútímalegt popp og líkist á engan hátt sigurlögunum tveimur sem landi þeirra Johnny Logan söng svo eftirminnilega í Eurovision á níunda áratugnum.

Dana International.
Þá tekur sigurvegarinn frá því í fyrra, hin þýska Lena, þátt í keppninni annað árið í röð, nú með lagið Taken by a Stranger. Kynskiptingurinn Dana International frá Ísrael snýr einnig aftur í keppnina með lagið Ding Dong. Dana sigraði í Eurovision árið 1998 með Diva, sem náði miklum vinsældum í Evrópu í framhaldinu.



Hin Norðurlöndin eiga vitaskuld sína fulltrúa í keppninni. Hinn 21 árs Eric Saade vann Melodifestivalen-keppnina í Svíþjóð um síðustu helgi og mætir því til Þýskalands með stuðlagið Popular í farteskinu. Stella Mwangi keppir fyrir hönd Noregs með lagið Haba Haba, sem er undir afrískum áhrifum, og telja það margir sigurstranglegt. Hinn tvítugi Paradise Oskar syngur lagið Da da dam sem er framlag Finna í ár. Þetta er rólegt kassagítarlag sem felur í sér mikinn umhverfisboðskap.

Frá Danmörku kemur poppsveitin A Friend In London með lagið New Tomorrow sem auðvelt er að syngja með og gæti náð langt í keppninni.

freyr@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.