Vilja skýrari skilmála smálána 31. mars 2011 04:15
Strangar reglur verða um starfsemi smálánafyrirtækja hér á landi ef frumvarp verður að veruleika sem Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra, kynnti fyrir ríkisstjórn á þriðjudag. Í frumvarpinu er kveðið á um skyldur fyrirtækjanna þar sem þau þurfa meðal annars að veita neytendum upplýsingar um ársvexti af lánum sínum. Þá kveða lögin skýrt á um að greiðslumat þurfi að fara fram áður en lán er afgreitt og lántakendur megi greiða upp lán áður en lánstíma lýkur, án þess að greiða fyrir það hærri þóknun en sem nemur kostnaði lánveitanda. í athugasemdum ráðuneytisins við frumvarpið segir að nauðsynlegt sé að setja ramma utan um slíka starfsemi. Þar segir að kostnaður við lánin sé oft óhæfilega hár, jafnvel 600 prósent upphæðarinnar sem lánuð er. Umsagnaraðilar gátu þess meðal annars að starfsemi smálánafyrirtækja væri varasöm þar sem skilmálar væru óljósir og „viðkvæmir hópar“ gætu lent í vandræðum, meðal annars ungt fólk í fjárþröng og fólk með geðfötlun.- þj
Fréttir Mest lesið Flugeldar Landsbjargar lítið hækkað á milli ára Neytendur Einföld leið til að nýta hugmyndavinnu oftar Atvinnulíf Sektuð fyrir að auglýsa lénið á auglýsingaskilti Neytendur Sektuð fyrir að segjast vera best Neytendur Að kúpla okkur frá vinnu um jólin Atvinnulíf Grýlan sem segir vekjaranum að grjóthalda kjafti Atvinnulíf Bölvað basl á Bond Viðskipti erlent Gervigreindin sögð „bjargvættur“ jarðgassiðnaðarins Viðskipti erlent Kilroy hafi veitt ferðamönnum rangar upplýsingar Neytendur Innkalla sviðasultu vegna gruns um listeríu Neytendur Fleiri fréttir „Langstærsta“ vikan í sögu Ölgerðarinnar Nefna fimm veitingastaði að baki „gervikjarasamningi“ Raforka til gagnavera snarminnkað Þekktir netþrjótar réðust á kerfi Wise Discover hefur flug milli München og Íslands Hærri barnabætur og ný gjöld á nikótínvörur á nýju ári Hluthafarnir samþykkja samruna Marels við JBT Sekta þau sem ekki greiða rétt fargjald um fimmtán þúsund krónur Elma Sif til Stika Solutions Baldvin sagði upp 99 manns sem mættu ekki á morgunfund Standa vörð um bílastæði viðskiptavina Kringlunnar Vonar að allir pakkar berist til þeirra fyrir jól Kortleggja tómar íbúðir í samstarfi við sveitarfélög Jóna Björk tekur við Garðheimum Segja son og tengdadóttur Reynis ekki koma nálægt Mannlífskaupum EastJet flýgur til Basel og Lyon Margrét áfram rektor á Bifröst Ingibjörg Þórdís til Elko Fimm mætt í Kauphöllina RÚV sker sér stærri sneið af auglýsingakökunni Ársverðbólga óbreytt á milli mánaða Tómar íbúðir á landinu nú um 10 þúsund Keppinautar eigi ekki að opna bækur sínar hver gagnvart öðrum Segir kaupverðið á Mannlífi ekki hátt Hætta í stjórn vegna yfirvofandi kaupa á Mannlífi Heimkaup undir hatt Samkaupa Leggja nýjan jarðstreng til Súðavíkur Heimildin að ganga frá kaupum á Mannlífi Lykilstjórnendur fá skell vegna tugmilljóna hagnaðar Segir eðlilegar skýringar á hæsta raforkuverðinu Sjá meira